Bændaglíman 2009
Ólafur E. Ólafsson   
Mánudagur, 21. september 2009 15:56

baendagliman_2009Næstkomandi laugardag er loka mót ársins, Bændaglíman.

Leikinn verður hinn landsfrægi Vífilstaðascramble sem er fjögurra manna scramble, með skemmtilegu ívafi.

Ræst verður út af öllum teigum kl. 13:00 og mæting ekki síðar en 12:30.  Kverkarnar verða vættar og að leik loknum verður boðið upp á glæsilega veislu að hætti veitingamannsins. 

Þetta árið verður skipt í lið eftir bæjarfélgögunum Kópavogur / Garðabær.  Þeir sem ekki búa í þessum bæjarfélögum verður skipt á liðin.  Nú er um að gera að koma og vera með og sína bændum stuðning.

Skráning á www.golf.is  eða í rástímaskráningu í síma 897 7773

 

 
Joomla Templates by Joomlashack