|
Dós og flöskusöfnun unglinga |
|
Ólafur E. Ólafsson
|
|
Mánudagur, 23. nóvember 2009 11:23 |
|
Kæru félagsmenn GKG
Nú hefur verið ákveðið að afrekshópur unglinga fari í æfingaferð til Spánar í mars.
Ákveðið hefur verið að hefja dósa og flöskusöfnun og óskum við eftir stuðningi ykkar. Laugardaginn 28. nóvember næstkomandi milli klukkan 11:00 og 13:00 sækjum við dósir og flöskur til þeirra sem vilja gefa í ferðasjóð unglinga í GKG.
Viltu gefa dósir og /eða flöskur? Sendu þá tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
(Ragnheiður Sigurðardóttir) eða hringdu í síma 822-1574, og við sækjum til þín.
Einnig er hægt að koma með dósir og flöskur til okkar í áhaldahús GKG hvenær sem er (skiljið eftir við græna gáminn innst í horninu til hægri bak við áhaldahúsið)
Takk fyrir stuðninginn, Fjáröflunarnefnd unglinga GKG
|