|
Meistarmót GKG - 2010 Skráning hafin |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Þriðjudagur, 22. júní 2010 00:00 |
|
Skráning er hafin á meistarmót GKG árið 2010 sem fer fram dagana 4. - 10. júlí n.k.
Félagar eru hvattir til að skrá sig sem fyrst á www.golf.is.
Áætlaða rástíma má nálgast hér
Upplýsingar um flokkaskiptingu má nálgast hér |
|
Úrslit úr vinkvennamóti GKG / GO |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Miðvikudagur, 16. júní 2010 10:56 |
|
Nú er lokið vinkvennamóti GKG / GO sem fram fór 7 júní og 15 júni. Úrslit urðu þau að konur úr GO sigruðu í klúbbakeppninni.
Hulda Hallgrímsdóttir GO sigraði í samanlögðum höggleik á 182 höggum samanlagt.
Í punktakeppninni urðu úrslit þessi:
1. sæti Auður Guðmundsdóttir GO - 75 punktum samanlagt 2. sæti Anna Guðný Ásgrímsdóttir GO - 74 punktum samanlagt 3. sæti Hulda Hallgrímsdóttir GO - 72 punktar samanlagt
Nándarverðlaun 15 júni hjá GKG:
2. hola Linda B. Pétursdóttir GKG - 4,23 11. hola Bergþóra Sigmundsdóttir GKG - 1,66 13. hola Hlíf Hansen GO - 2,45 17. hola Ragnheiður Hansen GO - 4,78
Kvennanefndir GKG og GO vilja þakka öllum þátttakendum fyrir þátttökuna. |
|
Reglur um val á karlasveit GKG í sveitakeppni eldri kylfinga 2010 |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Miðvikudagur, 16. júní 2010 08:04 |
|
Reglur um val á karlasveit GKG í sveitakeppni eldri kylfinga 2010
Rétt til þátttöku hafa allir kylfingar sem verða 55 ára og eldri á árinu 2010.
Lokastaða í mótum LEK vorið 2010 gildir sem fyrsti hringur af 8. Síðan eru leiknir 7 hringir og ræður röð kylfinga fjölda stiga sem þeir fá fyrir hvern hring. Leikið er af gulum teigum á Leirdalsvelli.
Gefin eru stig eins og notuð eru við val á landsliðum LEK, höggleikur án forgjafar. 1. sæti fær 180 stig, 2. sæti fær 160 stig, 3. fær 145 stig, 4. fær 140, 5. fær 135, 6. fær 130, 7. fær 125, 8. fær 120 og svo framvegis.
- Röð í LEK mótum vorið 2010.
- Miðvikudagsmótaröð 23. júní
- Meistaramót GKG, 1. dagur hvers kylfings
- Meistaramót GKG, 2. dagur
- Meistaramót GKG, 3. dagur
- Miðvikudagsmótaröð 14. júlí
- Miðvikudagsmótaröð 28. júlí
Af 7 hringjum telja 5 sem flest stig gefa hjá hverjum kylfingi.
Þeir 6 kylfingar sem flest stig fá verða í sveitinni og auk þess hefur liðsstjórinn Kjartan Guðjónsson frjálst val um tvo.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Árnason, S: 697-9467, netfang
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
|
Eimskipsmótaröðin : 2 hring frestað vegna veðurs |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Laugardagur, 12. júní 2010 12:16 |
|
Vegna veðurs hefur verið ákveðið að fresta öðrum hring á Eimskipsmótaröðinni til sunnudagsins 13 júní.
Ræst verður út í annan hring frá kl 06:30 og verður ræst út eftir skori frá fyrsta hring. Kylfingar eru hvattir til að fylgjast með rástímaskráningu á www.golf.is.
Ræst verður út í lokahringinn kl. 12:00 og verður þar einnig ræst út eftir skori.
Mótanefnd |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Föstudagur, 11. júní 2010 12:03 |
|
Eins og félagar hafa tekið eftir þá er GSÍ með stigamót á Leirdalsvelli bæði laugardag og sunnudag. Völlurinn verður allveg lokaður laugardaginn 12 júni og fram eftir degi á sunnudeginum.
Félagar í GKG geta leikið aðra velli inn GSÍ á 50% gjaldi þessa tvo daga. Við vonum að félagar sýni þessu skilning og nýti tækifærið til að prófa aðra velli þessa helgina.
Stjórn GKG |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Miðvikudagur, 09. júní 2010 14:40 |
|
Sunnudaginn 6. júní bauð GKG starfsmönnum Kópavogs- og Garðabæjar og fjölskyldum þeirra upp á golfdag á svæði klúbbsins við Vífilsstaði til að kynna það góða og öfluga starf sem fer fram hjá klúbbnum.
Afrekskylfingar og þjálfarar klúbbsins héldu uppi dagskrá á milli 10-14 sem var samansett af ýmiskonar stöðvum. Fengu starfsmenn bæjarfélaganna kennslu í púttum, vippum og leiðbeiningar í sveiflunni auk þess sem bestu kylfingar klúbbsins sýndu hæfileika sýna á golfsýningu sem tókst afar vel.


Eftir golfsýninguna var haldin grillveisla og keppendur undirbjuggu sig fyrir Texas scramble mót sem haldið var á Mýrinni þar sem 16 manns tóku þátt.
Úrslit í mótinu urðu eftirfarandi: högg m/forgjöf 1. sæti - Ragnheiður Stephensen/Unnur Sæmundsdóttir 30 högg 2. sæti - Bergþóra Sigmundsdóttir/Gunnar Valdimar Johnsen (yngri) 35 högg ( betri á seinustu 6 holum) 3. sæti - Alexander Lúðvíksson/ Kristinn Jónsson 35 högg
Hlutu þessir keppendur verðlaun úr golfverslun GKG.
Að lokum vill klúbburinn þakka öllum þeim sem að tóku þátt í deginum og vonandi verður hægt að endurtaka leikinn að ári. |
|
Nýtt vallarmet á Leirdalsvelli |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Miðvikudagur, 09. júní 2010 09:46 |
|
Fyrsta mótið af þremur í Bushnell mótaröð meistaraflokkskylfinga fór fram í gær í GKG. Um er að ræða samstarf milli GKG, GO og GK. Mótaröðin er hluti af uppbyggingar og afreksstarfi klúbbanna og miðar að því að undirbúa afrekskylfinga til þátttöku á GSÍ mótaröðinni. Mótin eru þrjú talsins en tvö af þremur gilda í heildarkeppninni þar sem sigurvegarar í karla og kvennaflokki hreppa að launum Bushnell Pinseeker Tour V2 kíki. Alls kepptu 35 kylfingar í gær í fyrsta mótinu og setti Axel Bóason nýtt og glæsilegt vallarmet í karlaflokki, en hann lék á 67 höggum af hvítum teigum. Næsta stigamót í Arion banka mótaröðinni fer fram í GKG á Leirdalsvelli, og þ.a.l. hafa keppendur nýtt viðmið hvað skor varðar. Systir hans, Jódís, var með besta skorið í kvennaflokki, 75 högg.
Hér fyrir neðan má sjá bestu skorin, en úrslit hjá öllum keppendum má sjá hér.
| Kvennaflokkur |
Karlaflokkur |
| 1. Jódís Bóasdóttir GK 75 |
1. Axel Bóasson GK 67 |
| 2. Signý Arnórsdóttir GK 82 |
2. Guðjón Henning Hilmarsson GKG 71 |
| 3. Eygló Myrra Óskarsdóttir GO 83 |
3. Steinn Freyr Þorleifsson GK 71 |
| 4. Ingunn Einarsdóttir GKG 83 |
4. Rúnar Arnþórsson GK 74 |
| 5. Tinna Jóhannsdóttir GK 83 |
5. Bjarki Freyr Júlíusson GKG 75 |
|
|
Tveir kylfingar frá GKG í landsliði eldri kylfinga |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Þriðjudagur, 08. júní 2010 16:44 |
|
Þau Gunnar Árnason og María Guðnadóttir tryggðu sér um helgina sæti í landsliðum eldri kylfinga. Til hamingju með árangurinn!
Hér fyrir neðan má sjá hvernig liðin eru skipuð:
Landslið karla 55+ án forgjöf: Jón Haukur Guðlaugsson GR 871,7 Óskar Sæmundsson GR 809,2 Rúnar Svanholt GR 682,5 Þorsteinn Geirharðsson GS 645,0 Snorri Hjaltason GR 637,5 Friðþjófur A. Helgason NK 630,0
Landslið karla 55+ með forgjöf: Stefán B. Gunnarsson GR 657,5 Gunnar Árnason GKG 616,7 Guðmundur Ágúst Guðmundsson 603,3 Guðjón Þorvaldsson GKJ 597,5 Jón Alfreðsson 500,0 Jóhann P. Andersen 490,0
Landslið kvenna 50+: María Málfríður Guðnadóttir GKG 850,0 Guðrún Garðars GR 817,5 Margrét Geirsdóttir GR 762,5 Kristjana Aradóttir GK 729,2 Erla Adólfsdóttir GK716,7
Landslið karla 70+: Sigurður Albertsson GS 818,3 Páll Bjarnason GR 763,3 Kolbeinn Péturtsson GR 746,7 Sigurjón R Gíslason GK 741,7 Jens Karlsson GK 702,5 Elías Þ. Magnússon GK 672,5
|
|
Arion banka mótaröð unglinga - mót nr. 2 |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Þriðjudagur, 08. júní 2010 16:21 |
|
Um helgina lauk öðrum stigamótum sumarsins í Arionbankamótaröð GSÍ og Áskorendamótaröð GSÍ. Mótin fóru fram á Korpu og Kili og var þátttaka frá GKG mjög góð og árangur víðast hvar einnig mjög góður. Bestum árangri GKG kylfinga í Arionbankamótaröðinni náði Emil Þór Ragnarsson, en hann endaði í 2. sæti í flokki 15-16 ára. Besta hring GKG kylfinga náði Davíð Ómar Sigurbergsson, en hann lék á 70 höggum, einu höggi undir pari og endaði í 8. sæti í flokki 17-18 ára. Nánari úrslit úr öllum flokkum er hægt að sjá með því að smella hér.
Í Áskorendamótaröðinni náði Gunnhildur Kristjánsdóttir þeim frábæra árangri að sigra í sínum flokki. Til hamingju með sigurinn! Nánari upplýsingar um úrslit er hægt að finna með því að smella hér.
|
|
Vinkvennamót GKG / GO 15 júní |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Mánudagur, 07. júní 2010 09:35 |
|
Heimsókn GOkvenna til GKGkvenna þriðjudaginn 15. júní nk.
Um er að ræða tveggja daga vinkvennakeppni milli golfklúbbanna. Sá klúbbur sem fær flesta samanlagða punkta þessa tvo daga vinnur og verður miðað við 10 punktahæstu konur hvorn dag úr hvorum klúbbi. Hámarks forgjöf er 36. Einnig verða veittar viðurkenningar til þriggja kvenna sem verða með samanlagða flesta punkta þessa tvo daga og einnig fær sú kona viðurkenningu sem verður með lægsta samanlagða skorið báða dagana.
Mánudaginn 7. júní nk. heimsækja GKGkonur konur í GO á Urriðavöll. Spilaðar verða 18 holur og er vallargjaldið kr. 2.500 fyrir GKGkonur. Skráningu lýkur sunnudaginn 6. júní. Opnað hefur verið fyrir skráningu í ráðtíma fyrir kl. 14:00.
Þriðjudaginn 15. júní nk. heimsækja GOkonur konur í GKG á Vífilsstaðavöll. Spilaðar verða 18 holur og er vallargjaldið kr. 2.500 fyrir GOkonur. Skráningu lýkur sunnudaginn 13. júní n.k. Skráning fer fram á golf.is, GKG/GO Kvennamót. Stefnt verður að því að saman leiki í holli tvær konur frá GO og tvær konur frá GKG. Í mótslok 15. júní nk. verða afhentar viðurkenningar.
Opnað verður fyrir skráningu á golf.is kl 13 mánudaginn 7 júní
Óski konur eftir því fá súpu og brauð við leikslok hvorn dag skulu þær geta þess sérstaklega við komu í veitingasalinn og greiða sérstaklega fyrir.
Kvennanefndir GKG og GO. |
|
Miðvikudagsmótaröðin hefst aftur |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Sunnudagur, 06. júní 2010 12:58 |
|
Fyrsta mót ársins í miðvikudagsmótaröðinni fer fram næstkomandi miðvikudag 9. júní. Fyrirkomulagið er það sama og áður. Kylfingar skrá sig venjulega á rástíma, koma inn í golfverslun og greiða þar mótsgjald 1.500 krónur og fá útprentað skorkort til að skrá inn skorið sem á að skila inn eftir hringinn. Kylfingar hafa möguleika á því að skila inn skorkortinu til kl 22 á fimmtudaginn eftir mótið. Leikin er punktakeppni í karla og kvennaflokki og gilda 4 bestu hringirnir af 6 í sumar. Eins og áður verða glæsileg verðlaun fyrir heildapunktakeppnina eins sem að veitt verða verðlaun fyrir flesta punkta í einstökum mótum. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |
|
|