LOKAMÓT GKG ÖLDUNGA 2010
Skrifað af: Guðrún Helgdóttir   
Þriðjudagur, 07. september 2010 13:30

Lokamóti öldunga verður miðvikudaginn 15. september og hefst kl.  16:00.  Leiknar verða 9 holur á Mýrinni.  Höggleikur án forgjafar ásamt punktakeppni.  Ræst verðu út á öllum teigum samtímis.

Í mótslok verður kvöldverður og verðlaunaafhending fyrir mótið og miðvikudagsmótin sem fram fóru í sumar þar sem þrjú mót af sex töldu.  Nándarverðlaun á öllum par 3 holum.

Verð: mótsgjald með kvöldverði kr. 1.500.- 

Fjölmennum á okkar lokamót sumarsins, skráning í skála.

Stjórnin.

 

 
Firmakeppni GKG 2010
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson   
Mánudagur, 06. september 2010 10:37
Laugardaginn 11. september verður árleg firmakeppni GKG  haldin, glæsilegir vinningar eru í boði, við viljum beina því til félagsmanna að þeir taki þátt í söfnun fyrirtækja með því að bjóða atvinnurekendum sínum þátttöku  í keppninni.
 
Birgir Leifur lék á 58 höggum!
Skrifað af: Úlfar Jónsson   
Mánudagur, 06. september 2010 10:26

Birgir Leifur Hafþórsson náði þeim fáheyrða árangri að leika á 58 höggum í gær. Birgir Leifur náði þessum áfanga á Garðavelli á Akranesi, en par vallarins er 72. Svo sannarlega frábært afrek en það eru afar fáir kylfingar í heiminum sem hafa náð að leika undir 60 höggum. Innilega til hamingju Birgir Leifur.

 
Lokamót GKG kvenna
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson   
Fimmtudagur, 02. september 2010 10:16

LOKAMÓT GKG  KVENNA 2010

 

 

Lokamót GKGkvenna verður laugardaginn 4. september nk. og hefst kl. 09:00 og lokaskráning er kl. 13:00. Leiknar verða 18 holur á Leirdalnum. Leikfyrirkomulagið verður punktakeppni með fullri forgjöf.

Skráning fer fram á golf.is og lýkur föstudaginn 3. september nk. kl. 16:00. 

Í mótslok verður lokahóf GKGkvenna og hefst matur kl. 19:30. Gert er ráð fyrir að þær konur sem taka þátt í lokamótinu komist heim til að skipta um föt fyrir lokahófið. Óskað er eftir skemmtiatriðum og æskilegt er að skemmtikraftar láti stjórnarkonur vita fyrir lokahófið.  Lokahófið er fyrir allar konur í GKG.

Mótsgjald er kr. 1.500 og innifalið er mótsgjald og kvöldverður.  Greitt er í veitingasölunni í golfskálanum við upphaf móts.  Sama gjald er fyrir allar konur óháð því hvort að þær taki þátt í mótinu eða eingöngu kvöldverðinum.   Þær konur sem eingöngu taka þátt í lokahófinu skulu skrá sig á sérlista í golfskálanum og greiða í veitingasölunni í golfskálanum við komu í lokahófið.

Veitt verða verðlaun fyrir efstu sætin í punktakeppni, næst holu á fjórum par 3 holum, 2. holu, 11. holu, 13. holu og 17. holu og verður boltinn að vera á flöt og lengsta brautarhögg á braut á 3. braut og verður boltinn að vera á braut. Einnig verða veitt verðlaun til þeirrar konu sem hefur fengið flesta punkta á 5 bestu 9 holum hennar í kvennagolfinu í sumar. 

Konur í GKG fjölmennum laugardaginn 4. september nk. í kvöldverðinn og/eða mótið og skemmtum okkur saman.

 

Golfkveðjur kvennanefndin

 
Sigmundur Einar í 2. sæti í Eimskipsmótaröðinni

 










 

Skrifað af: Úlfar Jónsson   
Mánudagur, 30. ágúst 2010 09:45

Seinasta stigamóti ársins í Eimskipsmótaröðinni lauk í gær, en mótið fór fram hjá Golfklúbbnum Hellu. Sigmundur Einar Másson náði besta árangri GKG kylfinga, en hann hafnaði í 2. sæti, aðeins einu höggi á eftir sigurvegaranum, Haraldi Franklín Magnús, sem sigraði í fyrsta sinn á mótaröðinni. Í kvennaflokki náði Hansína Þorkelsdóttir besta árangri GKG kvenna, en hún hafnaði í 7. sæti. Sunna Víðisdóttir, aðeins 15 ára, sigraði í fyrsta sinn í Eimskipsmótaröðinni.

Með þessu móti lauk mótaröðinni og stigameistari karla er Hlynur Geir Hjartarsson, GK, en Simmi hafnaði í 2. sæti í stigakeppninni, sem er frábær árangur, og óskum við honum til hamingju með það. Valdís Þóra Jónsdóttir GL varð stigameistari kvenna, en Ingunn Gunnarsdóttir varð í 8. sæti, efst GKG kvenna.

Hér fyrir neðan má sjá úrslit þeirra efstu, en nánari upplýsingar er að finna www.golf.is.

 

Karlaflokkur                                                            H1           H2         Samtals   Mism.

1              Haraldur Franklín Magnús            GR          71           67           138         -2

2              Sigmundur Einar Másson              GKG       69           70           139         -1

3              Stefán Már Stefánsson                  GR          70           69           139         -1

4              Hlynur Geir Hjartarson                  GK          72           68           140         0

5              Rúnar Arnórsson                           GK          70           71           141         1

6              Nökkvi Gunnarsson                      NK          71           71           142         2

7              Guðjón Henning Hilmarsson       GKG       73           70           143         3

8              Guðmundur R. Hallgrímsson       GS          71           72           143         3

9              Guðmundur Á.  Kristjánsson       GR          68           75           143         3

10           Andri Þór Björnsson                    GR          71           73           144         4

11           Þórður Rafn Gissurarson              GR          71           73           144         4

12           Kjartan Dór Kjartansson             GKG       70           75           145         5

Kvennaflokkur                                                        H1           H2           Samtals  Mism.

1              Sunna Víðisdóttir                         GR          73           76           149         9

2              Nína Björk Geirsdóttir                 GKJ        79           72           151         11

3              Berglind Björnsdóttir                    GR          76           75           151         11

4              Heiða Guðnadóttir                       GKJ        76           77           153         13

5              Íris Katla Guðmundsdóttir            GR          78           79           157         17

6              Þórdís Geirsdóttir                        GK          78           80           158         18

7              Hansína Þorkelsdóttir                  GKG       82           82           164         24

8              Ingunn Einarsdóttir                       GKG       85           83           168         28

9              Hrafnhildur Gunnarsdóttir             GKG       86           84           170         30

10           Karen Guðnadóttir                         GS          89           82           171         31

11           Heiður Björk Friðbjörnsdóttir         GS          86           88           174         34

12           Ragnhildur Kristinsdóttir                 GR          93           86           179         39

 

 

 
Hatta og kjólamótið 31. ágúst
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson   
Fimmtudagur, 26. ágúst 2010 17:03

Hatta- og kjólamótið 31. ágúst nk.

 

Hatta- og kjólamót GKGkvenna verður haldið þriðjudaginn 31. ágúst nk. Mótið er punktamót með hæstu forgjöf. Leiknar verða 9 holur á Mýrinni. GKGkonur eru hvattar til að mæta í kjólum, með hatta og með góða skapið, eins og venjulega. Innritun fer fram á golf.is. Ekkert keppnisgjald er í mótið en hver kona sem tekur þátt í mótinu kemur með einn vinning á um kr. 1.000. (Ef gleymist að koma með vinning er hægt að kaupa eitthvað í PROshop). Best klædda konan fær viðurkenningu og einnig er veitt viðurkenning fyrir flottasta hattinn. Viðurkenningarnar geta ekki fallið í hlut sömu konu.

 

Minnum á lokamótið og lokahófið sem er laugardaginn 4. september n.k.  Nánari upplýsingar verða settar á netið síðar.

 

Kvennanefndin

 
Miðvikudagsmótaröðin - lokastaða
Skrifað af: Valgeir Tómasson   
Þriðjudagur, 24. ágúst 2010 11:25

Eftir sex mót á miðvikudagsmótaröðinni eru úrslitin orðin klár

Verðlaunaafhending fyrir mótaröðin verður haldin á Bændaglímunni sem fer fram í lok vertíðar

Stöðuna þar sem að fjórir bestu hringirnir telja má nálgast hér

 
Jóns Ólafssonar mótið - styrktarmót fyrir íþróttasvið
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson   
Þriðjudagur, 24. ágúst 2010 08:15

Næstkomandi laugardag fer fram Jóns Ólafssonar mótið sem er styrktarmót fyrir íþróttastarf klúbbsins.  Íþróttafólk okkar hefur staðið sig frábærlega það sem af er ári og má þar nefna að Birgir Leifur Hafþórsson er bæði Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni.  Kvennasveit GKG varð í örðu  sæti í sveitakeppninni og er það besti árangur sem þær hafa náð, karlalið okkar varð í þriðja sæti.  Drengjasveit 15 ára og yngri varð um helgina Íslandsmeistari og kvennasveit öldunga náði örðru sætinu á Akureyri. Glæsilegur árangur.

Jón Ólafsson var einn af frumkvöðlum íþrótta og afreksstarfs GKG og því ber styrktarmótið nafn hans.

 

Mótið er punktamót og höggleikur þar sem hámarks leikforgjöf er 24 hjá körlum og 28 hjá konum.

Mótsgjald er kr. 4.000 og rennur það óskipt til íþróttastarfs GKG.

 

Íþróttanefnd vonar að sem flestir sjái sér fært að mæta og styrkja það góða starf sem unnið.

 
Breyttur opnunartími verslunar og valla
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson   
Þriðjudagur, 24. ágúst 2010 08:12

Nú þegar farið er að skyggja verulega á kvöldin hefur opnunartíma valla og verslunar verið breytt.  Nú lokar fyrir skráningu á vellina klukkan 21:00 á kvöldin.  Verslunin lokar einnig klukkan 21:00 frá og með mánudeginum 23. ágúst.

á komandi vikum mun síðan lokunartími færast frama og ræðst það af birtu.

 
GKG drengir Íslandsmeistarar og öldungasveit kvenna í 2. sæti!
Skrifað af: Úlfar Jónsson   
Mánudagur, 23. ágúst 2010 10:06

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

GKG drengir gerðu sér lítið fyrir urðu Íslandsmeistarar í Sveitakeppni GSÍ í flokki 15 ára og yngri. Þeir lögðu sveit GK-B í úrslitum 2/1. Sveit GKG skipuðu Aron Snær Júlíusson, Egill Ragnar Gunnarsson, Kristófer Orri Þórðarsson, Ragnar Már Garðarsson og Þórður Örn Reynisson. Liðsstjórar voru Guðbjartur Gunnarsson og Sigmundur Einar Másson. Mótið fór fram í Þorlákshöfn og kepptu alls 28 sveitir frá klúbbum víðsvegar um landið, 19 drengjasveitir og 9 stúlknasveitir. 

Nánari upplýsingar og úrslit má sjá hér.

Einnig fór fram Sveitakeppni í flokki 18 ára og yngri í Leirunni, og má sjá upplýsingar hér.

Auk þessa fór fram Sveitakeppni öldunga á Akureyri og náði öldungasveit GKG kvenna frábærum árangri og komust í úrslit. En líkt og stöllur þeirra úr 1. deildinni urðu þær að láta sér lynda 2. sætið. Engu að síður frábær árangur. Upplýsingar um úrslit má finna hér.

kvennasveit_ldunga_2010

 

Sveit GKG öldunga karla hafnaði í 5. sæti og er hægt að finna nánari upplýsingar og úrslit hér

Innilegar hamingjuóskir með frábæran árangur!

 

 
Styrktarmót fyrir sveitir GKG - Úrslit
Skrifað af: Valgeir Tómasson   
Laugardagur, 21. ágúst 2010 17:45

Höggleikur án forgjafar

  1. 1. sæti – Brynjar Jóhannesson                    76 högg
  2. 2. sæti – Ragnar Davíð Riordan                 77 högg

Punktakeppni

  1. 1.sæti – Davíð Hreinsson                          36 punktar – betri á seinni 9
  2. 2. sæti – Ragnar Davíð Riordan                36 puntkar
  3. 3. sæti – Jóel Kristinsson                          36 punktar

Nándarverðlaun

2. hola – Óskar Óskarsson – 8.97m

4. hola – Flóki Pálsson – 77,5cm

9. hola – Kristinn Wium – 2.64 m

11.hola – Sigurþór Sigurðsson – 2.5m

13. hola – Davíð Hreinsson – 1.83 m

17. hola – Jóel Kristinsson – 0,83 m

GKG þakkar öllum keppendum kærlega fyrir stuðninginn!

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Styrktaraðilar






LYSING

Póstlisti GKG

Joomla Templates by Joomlashack