|
BYLGJAN OPEN - Verðlaunaafhending |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Sunnudagur, 25. júlí 2010 13:57 |
|
Verðlaunaafhending fer fram kl 17:00 í dag. Um að gera að mæta því dregið verður úr glæsilegum skorkortaverðlaunum.
Mótanefnd |
|
Opið sólstöðumót kvenna ÚRSLIT |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Sunnudagur, 25. júlí 2010 12:43 |
|
Opið Sólstöðumót kvenna 25. júní s.l. úrslit
Föstudagskvöldið 25. júní 2010 var 18 holu opið kvennagolfmót í Leirdalnum. Í mótinu tóku þátt 64 konur og gekk mótið hratt og vel fyrir sig og komu keppendur inn um kl. 24:00. Um var að ræða punktamót og var keppt í tveimur forgjafarflokkum 0-24 og 24,1-40.
Flokkur 0-24
Kristín Anna Hassing GKG, 35 punkta og fékk hún gistingu og morgunmat í eina nótt fyrir tvo á Edduhóteli og tvo golfhringi hjá GKG
Sólrún Steindórsdóttir GO, 34 punkta og fékk hún golfpoka frá HOLE IN ONE
Ólöf Ásgeirsdóttir GKG, 34 punkta og fékk hún þriggjarétta hádegismat fyrir tvo á Hótel Holti
Valgerður Jóna Garðarsdóttir GKJ, 34 punkta og fékk hún kvöldverðarhlaðborð fyrir tvo í Lóninu, Hótel Loftleiðum
Sigríður Kristinsdóttir GR, 33 punkta og fékk hún klippingu o.fl. að andvirði kr. 10.000 hjá Kristínu Stefánsdóttur, hárgreiðslukonu
Birna Aspar GKG, 31 punkt og fékk hún kennslu hjá Derric 2x30 mín.
Flokkur 24,1 40
- Ólöf Guðmundsdóttir GK, 35 punkta og fékk hún gistingu og morgunmat í eina nótt fyrir tvo á Edduhóteli og tvo golfhringi hjá GKG
- Þuríður Valdimarsdóttir GKG 34 punkta og fékk hún golfpoka frá HOLE IN ONE
- Ragna Stefanía Pétursdóttir GKJ, 32 punkta og fékk hún þriggjarétta hádegismat fyrir tvo á Hótel Holti
- Oddrún Sverrisdóttir GKJ, 31 punkt og fékk hún kvöldverðarhlaðborð fyrir tvo í Lóninu, Hótel Loftleiðum
- Steinunn Jónsdóttir GR, 31 punkt og fékk hún klippingu o.fl. að andvirði kr. 10.000 hjá Kristínu Stefánsdóttur, hárgreiðslukonu
- Kristín Erna Guðmundsdóttir GO, 30 punkta og fékk hún kennslu hjá Úlfari 2x30 mín.
Nándarverðlaun á 2. holu: Sólrún Steindórsdóttir GO og fékk hún ýmsar vörur frá Ölgerðinni
Nándarverðlaun á 11. holu: Kristín Erna Guðmundsdóttir GO og fékk hún ýmsar vörur frá Ölgerðinni
Nándarverðlaun á 13. holu: Ólöf Ásgeirsdóttir GKG og fékk hún ýmsar vörur frá Ölgerðinni
Nándarverðlaun á 17. holu: Þuríður Valdimarsdóttir GKG og fékk hún ýmsar vörur frá Ölgerðinni
Við mótslit var dregið út skorkortum og fengu 27 konur verðlaun af ýmsu tagi.
Við þökkum samstarfsaðilum okkar fyrir veittan stuðning. Starfsfólki GKG og veitingasölunnar þökkum við sérstaklega fyrir frábæra aðstoð við þetta mót sem og önnur mót nú í sumar.
Kvennanefndin |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Laugardagur, 24. júlí 2010 21:38 |
|
Rástímar fyrir seinni dag Bylgjan Open mótsins eru komnir inn á www.golf.is.
Munið að velja hring 2
Vegna vandræða með golf.is var keppendum raðað þannig að karlarnir spila fyrstir og síðustu tvö hollin eru kvennaholl.
Spilamennskan í dag var glæsileg og því þurftu menn( og konur) að spila á 33 punktum til að komast í gegnum niðurskurðinn.
GKG |
|
|
Úrslit úr kvennamóti 20/7/2010 |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Fimmtudagur, 22. júlí 2010 11:22 |
|
Kvennamót 20. júlí s.l. úrslit
Þriðjudaginn 20. júlí 2010 var 18 holu golfmót hjá konum í GKG í Leirdalnum. Í mótinu tóku þátt 58 konur og spiluð margar mjög gott golf í góðu veðri.
- Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir, 42 punkta og fékk hún kr. 12.000 úttekt í HOLE IN ONE
- Heiðrún Líndal Karlsdóttir, 41 punkt og fékk hún kr. 10.000 úttekt í HOLE IN ONE
- Guðrún Unnur Rafnsdóttir, 40 punkta og fékk hún kr. 8.000 úttekt frá HOLE IN ONE
- Hólmfríður Þórhallsdóttir, 39 punkta og fékk hún kr. 6.000 úttekt frá HOLE IN ONE
- Hanna Bára Guðjónsdóttir, 38 punkta og fékk hún kr. 4.000 úttekt frá HOLE IN ONE
Nándarverðlaun á 2. holu: Sólveig Steinsson og fékk hún ýmsar vörur frá INNNES
Nándarverðlaun á 4. holu: Ólöf Ásgeirsdóttir og fékk hún ýmsar vörur frá INNNES
Nándarverðlaun á 11. holu: Hanna Bára Guðjónsdóttir og fékk hún ýmsar vörur frá INNNES
Nándarverðlaun á 17. holu: Þuríður Valdimarsdóttir og fékk hún ýmsar vörur frá INNNES
Verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 1. braut: Áslaug Sigurðardóttir og fékk hún ýmsar vörur frá INNNES
Við mótslit var dregið út skorkortum og fengu 11 konur vörur frá HOLE IN ONE og GKG.
Næsta mót hjá GKG konum verður í óvissuferðinni þriðjudaginn 10. ágúst nk.
Við þökkum samstarfsaðilum okkar HOLE IN ONE, INNNES og GKG fyrir veittan stuðning. Starfsfólki GKG og veitingasölunnar þökkum við sérstaklega fyrir frábæra aðstoð við þetta mót sem og önnur mót nú í sumar.
Kvennanefndin |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Þriðjudagur, 20. júlí 2010 15:19 |
|
Þriðja mótið í miðvikudagsmótaröðinni fór fram miðvikudaginn 14. júlí
Stöðuna eftir 3 mót má nálgast hér |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Þriðjudagur, 20. júlí 2010 14:22 |
|
Úrslit eru komin úr öðru móti svalamótaraðarinnar. Mettþátttaka var í mótinu en alls 56 börn á aldrinum 7-12 ára tóku þátt.
Verðlaunahafar geta nálgast verðlaunin sín í Pro shop á opnunartíma.
Úrslitin má nálgast hér |
|
Góður árangur GKG á Áskorendamótaröð GSÍ |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Þriðjudagur, 20. júlí 2010 10:18 |
|
Um helgina fór fram fjórða mót ársins í Áskorendamótaröð Arion banka á vegum GSÍ. Mótið fór fram á Svarfhólsvelli á Selfossi og voru keppendur frá GKG 15 talsins af 56. Margir af okkar kylfingum náðu góðum árangri og sigraði Óðinn Þór Ríkharðsson eftir bráðabana í flokki 14 ára og yngri. Í flokki 15-16 ára var Viktor Franz Jónsson í 3. sæti og í flokki 14 ára og yngri stúlkna varð Ásthildur Stefánsdóttir í 3. sæti. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn. Nánari upplýsingar um árangur keppenda er að finna hér.
Næsta mót í Áskorendamótaröðinni fer fram 7. ágúst hjá Golfklúbbi Voga við Vatnsleysuströnd.
|
|
Ragnar Már og Aron Snær í 3. sæti á Íslandsmóti unglinga |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Mánudagur, 19. júlí 2010 11:17 |
|
Íslandsmóti unglinga í höggleik lauk í gær og stóðu margir GKG kylfingar sig afar vel. Bestum árangri náðu Aron Snær Júlíusson sem hafnaði í 3. sæti eftir bráðabana í flokki 14 ára og yngri. Ragnar Már Garðarsson hafnaði einnig í 3. sæti í flokki 15-16 ára. Þess má geta að Ragnar hélt utan í dag til Ungverjalands til að taka þátt í European Young Masters, sem er gríðarlega sterkt unglingamót, en meðal fyrrum sigurvegara er Sergio Garcia.

Í flokki 17-18 ára náði Rúnar Örn Grétarsson sínum besta árangri í mótaröðinni og hafnaði í 4.-6. sæti, en hann leiddi sinn flokk eftir fyrsta hring eftir 69 högg. Tvær stúlkur tóku þátt frá GKG, Andrea Jónsdóttir og Særós Eva Óskarsdóttir, og kepptu þær í flokki 15-16 ára stúlkna. Þetta mót var mikilvægt fyrir reynslubankann hjá þeim og stóðu þær sig með mikilli prýði.
Einnig er gaman að geta þess að Pétur Andri Ólafsson fór holu í höggi í mótinu á 14. braut á öðrum hring. Einnig áttum við yngsta keppendann í mótinu, og líklegast í sögu Íslandsmótsins, en Sigurður Andri Garðarsson, aðeins 8 ára gamall, tók þátt og gerði sér lítið fyrir og hafnaði í 38. sæti af 49 keppendum í flokki 14 ára og yngri.
Nánari upplýsingar um árangur keppenda er að finna hér. |
|
Pétur Andri fór holu í höggi |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Sunnudagur, 18. júlí 2010 07:14 |
|
Pétur Andri Ólafsson náði draumahögginu í gær á Íslandmóti unglinga í Vestmannaeyjum. Pétur náði þessum áfanga í fyrsta skipti á 14. holunni, og notaði hann 52° sandjárnið.
Kylfingar GKG hafa staðið sig vel á mótinu og deilir Aron Snær Júlíusson efsta sætinu fyrir lokahringinn í flokki 14 ára og yngri. Ragnar Már Garðarsson er í 3. sæti í flokki 15-16 ára, og Rúnar Örn Grétarsson er í 4. sæti í elsta flokknum, 17-18 ára. Mótinu lýkur í dag og er hægt að fylgjast með árangri keppenda á www.golf.is. |
|
Opna American Express - ÚRSLIT |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Laugardagur, 17. júlí 2010 21:13 |
|
Nú er lokið Opna American Express mótinu sem fram fór í dag. Úrslit urðu sem hér segir.
Verðlaunahafar sem ekki mættu í verðlauna afhenndinguna geta nálgast verðlaun sín næstkomandi mánudag á skrifstofutíma.
Höggleikur:
1, sæti Ólafur Björn Loftsson NK 66 högg
2, sæti Alfreð Brynjar Kristinsson GKG 67 högg
3, sæti Guðjón Henning Hilmarsson GKG 69 högg
Punktakeppni: 1. sæti Halldór Svanbergsson GÁS 46 punktar 2. sæti Guðmundur Sævar Jónsson GKG 45 punktar 3. sæti Gunnar Sigurðsson GKG 40 punktar 4. sæti Ásbjörn Jónsson GKG 40 punktar 5. sæti Kjartan Dór Kjartansson GKG 39 punktar
Nándarverðlaun: 2. braut Rúnar Ágústsson GK 126 sm 4. braut Guðmundur Örn NK 147 sm 13. braut Sigmundur Einar Másson GKG 141 sm 17. braut Eva Lind Ágústsdóttir GÁS 76 sm |
|
Frábær byrjun GKG kylfinga |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Laugardagur, 17. júlí 2010 07:08 |
|
GKG kylfingar áttu sannkallaða óskabyrjun á fyrsta hring Íslandsmóts unglinga í Vestmannaeyjum og leiða í öllum piltaflokkum mótsins. Aron Snær Júlíusson lék á 72 höggum og leiðir með þriggja högga mun í flokki 14 ára og yngri. Ragnar Már Garðarsson lék á 75 höggum og deilir efsta sætinu ásamt tveimur öðrum í flokki 15-16 ára. Í flokki 17-18 ára gerði Rúnar Örn Grétarsson sér lítið fyrir og lék á 69 höggum, einu höggi undir pari vallarins, og tók forystuna. Aðstæður í gær voru býsna erfiðar, en vindasamt var í Eyjum. Hægt er að sjá skor kylfinga á www.golf.is.
Mótinu lýkur á sunnudag.
Með kveðju frá Eyjum. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |