|
Tveir kylfingar úr GKG í íslenska landsliðinu |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Föstudagur, 25. júní 2010 09:48 |
|
Íslenska landsliðið sem keppir í Evrópumóti landsliða í Svíþjóð var tilkynnt í morgun. Tveir kylfingar úr GKG eru í liðinu, þeir Sigmundur Einar Másson og Alfreð Kristinsson. Við óskum þeim til hamingju með valið. Derrick Moore, þjálfari hjá GKG er þjálfari landsliðsins. Liðið er skipað eftirfarandi kylfingum:
Alfreð Brynjar Kristinsson GKG Axel Bóasson GK Hlynur Geir Hjartarson GK Kristján Þór Einarsson GKj Ólafur Björn Loftsson NK Sigmundur Einar Másson GKG Liðsstjóri Ragnar Ólafssonl og Derrick Moore
EM karla fer fram hjá Österåkers Golf Club, Åkersberga í Svíþjóð. Mótið fer fram 6.-10. júlí og missa þeir þá af Meistaramóti GKG.
Kvennalandslið Íslands sem keppir á EM á Spáni er skipað eftirfarandi kylfingum.
Eygló Myrra Óskarsdóttir GO Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR Ragna Björk Ólafsdóttir GK Signý Arnórsdóttir GK Tinna Jóhannsdóttir GK Valdís Þóra Jónsdóttir GL Liðstjórar: Steinunn Eggertsdóttir og Karl Ómar Karlsson
EM kvenna fer fram á La Manga á Spáni 6.-10. júlí. |
|
Svalamótaröðin - vins. sýnið biðlund |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 24. júní 2010 12:30 |
|
Í dag hefst fyrsta mótið af fjórum í Svalamótaröðinni. Metþátttaka er í mótið þannig að gróskan og áhuginn er mikill hjá framtíðarkylfingum GKG. Ræst er út frá 15:30 - 18:00 og eru kylfingar sem fara út á eftir vinsamlegast beðnir um að sýna keppendum biðlund og þolinmæði. |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 24. júní 2010 09:48 |
|
Sigurður Arnar Garðarsson, er aðeins 8 ára og er þegar kominn með 20,7 í forgjöf! Blaðamaður Morgunblaðsins hitti Sigurð um daginn og úr varð stórskemmtilegt sjónvarpsviðtal sem má sjá hér. |
|
|
Opið sólstöðumót kvenna á föstudag. |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Miðvikudagur, 23. júní 2010 15:36 |
|
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í hið árlega sólstöðumót kvenna sem fram fer á Leirdalsvelli á föstudagskvöld. Mótið er punktamót og verður ræst út af öllum teigum kl. 18:45. Mæting er kl: 18:00
Leikið verður í tveimur flokkum: konur undir 24 og konur 24,1 - 40. Hámarks vallarforgjöf er 40.
Verð er kr. 4.500 og er innifalið súpa, salat og brauð að leik loknum.
Glæsileg verðlaun verða fyrir fyrstu 4 sætin í hvorum flokki. Þar á meðal gisting fyrir 2 á EDDU Hóteli með morgunverði. Hádegisverður fyrir 2 á Hótel Holt. Kvöldverðarhlaðborð fyrir 2 í Lóninu Hótel Loftleiðum. Golfkennsla hjá Úlfari Jónssyni, golfpokar frá Holi in One. * Leikmenn verða að hafa gilda forgjöf til að geta unnið til verðlauna.
Nándarverðlaun á 2, 11, 13, og 17. holu
Dregið verður úr skorkortum í mótslok og verða keppendur að vera á staðnum til að geta hlotið þau.
Verðlaunafhending verður í golfskála í mótslok.
Kveðja, kvennanefnd |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Þriðjudagur, 22. júní 2010 15:40 |
 |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Mánudagur, 21. júní 2010 16:47 |
|
Annað mót ársins á Miðvikudagsmótaröðinni fer fram næstkomandi miðvikudag 23. júní
Fyrirkomulagið er það sama og áður. Kylfingar skrá sig venjulega á rástíma, koma inn í golfverslun og greiða þar mótsgjald 1.500 krónur og fá útprentað skorkort til að skrá inn skorið sem á að skila inn eftir hringinn. Kylfingar hafa möguleika á því að skila inn skorkortinu til kl. 22 á fimmtudaginn eftir mótið. Leikin er punktakeppni í karla og kvennaflokki og gilda 4 bestu hringirnir af 6 í sumar. Eins og áður verða glæsileg verðlaun fyrir heildapunktakeppnina eins sem að veitt verða verðlaun fyrir flesta punkta í einstökum mótum.
Úrslit eftir 1. hring má nálgast hér |
|
Frábær sigur og 66 högg hjá Ragnari Má |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Mánudagur, 21. júní 2010 11:24 |
|
Um helgina lauk 3. stigamóti ársins í Arion banka mótaröð GSÍ. Leikið var á Strandarvelli við Hellu. GKG kylfingar stóðu sig mjög vel og sigraði Ragnar Már Garðarssson í flokki 15-16 ára, lék á 66 höggum á seinni keppnisdegi og sigraði með tveggja högga mun!
Nánari upplýsingar um árangur allra keppenda má finna hér.
Á myndinni má sjá verðlaunahafa í flokki 15-16 ára, frá vinstri Hallgrím Júlíusson, Ragnar Má og Bjarka Pétursson.
Einnig var haldið mót nr. 3 í Áskorendamótaröðinni og komu GKG kylfingar vel út úr þeirri keppni en Óðinn Þór Ríkharðsson og Viktor Franz Jónsson, sigruðu í sínum flokkum, en úrslit úr mótinu má sjá hér. |
|
Skrifað af: Guðmundur Árni Gunnarsson
|
|
Mánudagur, 21. júní 2010 09:18 |
|
Í dag 21. júní til og með miðvikudagsins 23. júní fer fram fíngerð tappagötun á flötum 1, 2, 16, 17 og 18 á Leirdalsvelli.
Á meðan á þessum aðgerðum stendur verða bráðabirgða holur framan við þá flöt sem unnið er á hverju sinni. Þetta er nauðsynleg framkvæmd til að bæta flatir vallarinns og ættu flatirnar að jafna sig á rúmlega viku. Við vonum að félagar sýni þessari framkvæmd skilning.
Kveðja, Vallarstjóri |
|
Meistarmót GKG - 2010 Skráning hafin |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Þriðjudagur, 22. júní 2010 00:00 |
|
Skráning er hafin á meistarmót GKG árið 2010 sem fer fram dagana 4. - 10. júlí n.k.
Félagar eru hvattir til að skrá sig sem fyrst á www.golf.is.
Áætlaða rástíma má nálgast hér
Upplýsingar um flokkaskiptingu má nálgast hér |
|
Úrslit úr vinkvennamóti GKG / GO |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Miðvikudagur, 16. júní 2010 10:56 |
|
Nú er lokið vinkvennamóti GKG / GO sem fram fór 7 júní og 15 júni. Úrslit urðu þau að konur úr GO sigruðu í klúbbakeppninni.
Hulda Hallgrímsdóttir GO sigraði í samanlögðum höggleik á 182 höggum samanlagt.
Í punktakeppninni urðu úrslit þessi:
1. sæti Auður Guðmundsdóttir GO - 75 punktum samanlagt 2. sæti Anna Guðný Ásgrímsdóttir GO - 74 punktum samanlagt 3. sæti Hulda Hallgrímsdóttir GO - 72 punktar samanlagt
Nándarverðlaun 15 júni hjá GKG:
2. hola Linda B. Pétursdóttir GKG - 4,23 11. hola Bergþóra Sigmundsdóttir GKG - 1,66 13. hola Hlíf Hansen GO - 2,45 17. hola Ragnheiður Hansen GO - 4,78
Kvennanefndir GKG og GO vilja þakka öllum þátttakendum fyrir þátttökuna. |
|
Reglur um val á karlasveit GKG í sveitakeppni eldri kylfinga 2010 |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Miðvikudagur, 16. júní 2010 08:04 |
|
Reglur um val á karlasveit GKG í sveitakeppni eldri kylfinga 2010
Rétt til þátttöku hafa allir kylfingar sem verða 55 ára og eldri á árinu 2010.
Lokastaða í mótum LEK vorið 2010 gildir sem fyrsti hringur af 8. Síðan eru leiknir 7 hringir og ræður röð kylfinga fjölda stiga sem þeir fá fyrir hvern hring. Leikið er af gulum teigum á Leirdalsvelli.
Gefin eru stig eins og notuð eru við val á landsliðum LEK, höggleikur án forgjafar. 1. sæti fær 180 stig, 2. sæti fær 160 stig, 3. fær 145 stig, 4. fær 140, 5. fær 135, 6. fær 130, 7. fær 125, 8. fær 120 og svo framvegis.
- Röð í LEK mótum vorið 2010.
- Miðvikudagsmótaröð 23. júní
- Meistaramót GKG, 1. dagur hvers kylfings
- Meistaramót GKG, 2. dagur
- Meistaramót GKG, 3. dagur
- Miðvikudagsmótaröð 14. júlí
- Miðvikudagsmótaröð 28. júlí
Af 7 hringjum telja 5 sem flest stig gefa hjá hverjum kylfingi.
Þeir 6 kylfingar sem flest stig fá verða í sveitinni og auk þess hefur liðsstjórinn Kjartan Guðjónsson frjálst val um tvo.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Árnason, S: 697-9467, netfang
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |