Áætlun um starf kvennanefndar GKG sumarið 2010

Kvennanefnd 2010 skipa:

  • Bergþóra Sigmundsdóttir, formaður, sími: 565-6529 og 691-0633, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Sesselja Magnea Matthíasdóttir, sími: 848-7171, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Bryndís Hinriksdóttir, sími: 695-0268, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Sóley Stefánsdóttir, sími: 616-1419, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Hildur Pálmadóttir, sími: 894-1424, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Ný kvennanefnd hefur tekið til starfa og er skipuð framangreindum konum. Við þökkum Vigdísi, Erlu og Signhild fyrir störf þeirra síðustu tvö ár. Starf kvennanefndar sumarið 2010 verður með nokkuð hefðbundnum hætti. Kvennaklúbburinn verður með fasta golftíma alla þriðjudaga frá 11. maí til 1. sept., rástímar eru frá kl. 17:00 – 18:50. Í sumar munum við almennt leika 9 holur á þriðjudögum og leikum því í Mýrinni. Í mótum leikum við 18 holur og verðum þá á Vífilsstaðavellinum að undanskildum mótunum 1. júní og 31. ágúst 2010. Kannað verður hvort að þriðjudagstímarnir verði settir upp sem mót, ef ekki þá verða konur að skrá sig í þriðjudagstímana með því að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða að hringja í skálann til að skrá sig, s: 897-7773 og 565-7373. Gæta verður að því að skrá kt., grunnforgjöf og vallarforgjöf. Hægt verður að skrá sig á miðvikudegi eftir hádegi til hádegis á leikdag (þriðjudag). Fjórar konur verða saman í holli og tvær skulu vera með grunnforgjöf að 28 og tvær yfir 28. Eins og áður er kvennanefndin með þessu að leitast við að samræma þrjú sjónarmið, þ.e. að konur ráði að einhverju marki með hverri þær spili, reynsla þeirra sem lengra eru komnar skili sér til þeirra sem eru styttra komnar og þá er einnig haft í huga mikilvægi þess að leikhraði okkar verði nokkuð góður.

Greitt er fyrir þátttöku í  mótum á Vífilsstaðavellinum til m.a. að standa undir kostnaði við verðlaun fyrir árangur og verður gjaldið kr. 1.500, að undanskildu Sólstöðumótinu, mótsgjöld á mótunum 1. júní og 31. ágúst 2009 verður kr. 1.000 og GKGkonur greiða ekki mótsgjald á Vífilsstaðavellinum í vinkvennamóti GKG- og GOkvenna. Við þurfum að greiða vallargjald á Urriðavelli þegar við förum þangað. Við munum reyna að semja um lægra vallargjald á þeim velli eins og verið hefur. Þátttökugjald í mótum í Mýrinni og á Vífilsstaðavellinum verður unnt að greiða í gegnum heimabanka inn á reikning kvennaklúbbsins eða með peningum og verður það tilkynnt nánar fyrir hvert mót.

Móta- og skemmtidagskrá kvennaklúbbsins sumarið 2010:

  • Föstudaginn  7. maí   Rauðvínskvöldið
  • Þriðjudaginn  11. maí   Fyrsti golfleikdagur
  • Þriðjudaginn  1. júní    9 holu þriðjudagsmót
  • Mánudaginn  7. júní   Vinkvennamót GKG og GO, Urriðavöllur
  • Þriðjudaginn  15. júní  Vinkvennamót GO og GKG, Vífilsstaðavöllur
  • Föstudagskvöld  25. júní  Opið sólstöðumót kvenna
  • Þriðjudaginn  20. júlí  18 holu þriðjudagsmót
  • Þriðjudaginn  10. ágúst  Óvissuferð
  • Þriðjudaginn  31. ágúst  Hatta- og kjólamót
  • Laugardaginn  4. september  Lokamót kvennaklúbbsins

Fastir golftímar kvenna alla þriðjudaga kl. 17:00-18:50.

Í mótslok fyrirhugaðra móta verður verðlaunaafhending í skála. Lokamót verður 4. september og verða þá afhent afreksverðlaun til þeirrar konu sem náð hefur flestum punktum yfir sumarið samkvæmt innlögðum skorkortum í skipulögðum leiktíma kvennaklúbbsins og framangreindum mótum.  Til grundvallar eru lögð fimm bestu skorkortin á 9 holum.  Munið að skila inn skorkortum í sérmerktan kassa kvennaklúbbsins.

Við munum leitast við að koma fréttum úr starfinu á heimasíðu GKG og myndum á myndasíðu klúbbsins.

Við hefjum tímabilið með hinu árlega “Rauðvínskvöldi” kvennaklúbbsins og verður það eins og að framan greinir föstudaginn 7. maí í golfskálanum.

Kvennanefnd áskilur sér rétt til breytinga á ofanrituðu skipulagi ef nauðsyn krefur.

Með golfkveðju
Garðabæ 16. apríl 2010
Bergþóra Sigmundsdóttir

 
Joomla Templates by Joomlashack