Sumarnámskeið 2010

Aldur
5-16 ára
Á námskeiðunum verður nemendum skipt í þrjá aldurshópa, 5 til 8, 9 til 12 ára og 13 til 16 ára. Ath. að námskeiðið fyrir 13 -16 ára er nýjung hjá okkur.

Dagsetningar:
14. – 18. júní (4 dagar, frí 17. júní)
21. – 25. júní
28. - 2. júlí
5. – 9. júlí Meistaramótsvikan, engin námskeið
12. – 16. júlí Íslandsmót unglinga, engin námskeið
19. - 23. júlí
26. - 30. júlí
3. – 6. ágúst (4 dagar)
9. – 13. ágúst
16. – 19. ágúst (4 dagar)

Tími
Haldin verða 2 námskeið á dag í 8 vikur, eða alls 16 vikulöng golfnámskeið.
Hægt er að velja um námskeið kl. 9-12 eða kl. 13-16. Til að byrja með verður einungis boðið upp á námskeið eftir hádegi fyrir 13-16 ára. Eftirspurn mun ráða hvort bætt verður við námskeiðum fyrir hádegi.

Verð
Vikan kostar kr. 8.500.
Veittur er 20% systkinaafsláttur. Einnig er veittur 20% afsláttur ef sótt eru fleiri en eitt námskeið. Þá verður einnig veittur 20% afsláttur af þeim námskeiðum sem einungis standa í fjóra daga. Hámarksafsláttur fyrir hvert barn á námskeiði er samt sem áður 20%.

Dagskrá:

Markmið barnanámskeiða
Markmið námskeiðanna er að kynna golfíþróttina fyrir börnunum og ýta undir áhuga þeirra á því að leggja stund á þessa göfugu íþrótt. Farið verður í alla helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga og verður eitthvað sérstakt tekið fyrir á hverjum degi, gjarnan í formi golfleikja ýmiss konar. Einnig verður lögð áhersla á að kynna golfsiði og golfreglur fyrir nemendum.
Mikilvægt er að á golfnámskeiðinu séu einnig fjölbreyttir leikir sem efla hreyfiþroska barnanna, s.s. samhæfingu, liðleika og jafnvægi, enda eru það mikilvægir þættir í hreyfingum golfsveiflunnar. Forgangatriði námskeiðana eru að þau séu skemmtileg, að börnin njóti sín og þróa jákvætt viðhorf til golfíþróttarinnar og komi til með að stunda hana ævilangt.

Námskeiðslýsing
Á námskeiðunum verður nemendum skipt í þrjá aldurshópa, 5 til 8 ára, 9 til 12 ára og 13-16 ára. Áherslumunur verður á námsefninu eftir aldurhópunum og má því segja að hér séu tvö námskeið í gangi í einu. Meira verður lagt upp úr tæknilegum atriðum, æfingum og golfreglukunnáttu í eldri hópunum. Yngsti hópurinn mun frekar fást við léttar og skemmtilegar æfingar, fjölbreytta og skemmtilega hreyfingu, keppnir af ýmsum toga og örlítið af golfsiðum og reglum. Á fimmta og lokadegi námskeiðsins, eftir styttri yfirferð í stutta spili og sveiflu, fá þátttakendur að kynnast leiknum sjálfum, á stuttum sérútbúnum golfvelli meðfram Vífilsstaðavegi, og kynnast því að telja skorið og leik á golfvelli af eigin raun. Námskeiðum lýkur með grilli og afhendingu viðurkenningarskjals frá GKG.

Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði er 30

Leiðbeinendur:
Yfirumsjónarmaður verður Úlfar Jónsson, sem er menntaður PGA golfkennari og íþróttastjóri hjá GKG. Leiðbeinendur námskeiðanna koma úr hópi afrekskylfinga úr klúbbnum, á aldrinum 15 til-21 árs, langflestir eru þeir með verulega reynslu af námskeiðahaldi. Þess er sérstaklega gætt að hópar undir umsjón leiðbeinanda verði ekki skipaðir fleiri en 6 börnum.

Aðsetur:
Barnaskóli Hjallastefnunnar, sem stendur öndvert við skála GKG, mun að nýju lána GKG kennslustofu sem miðstöð fyrir barnanámskeiðin. Þátttakendur mæta því þar í upphafi dags og aðstandendur sækja þangað í lok dags. Börnin munu vitaskuld ekki fara yfir veginn nema í fylgd með leiðbeinendum.

Umsóknareyðublað:

*
*
*
*
*
*
*
*
 
 
Joomla Templates by Joomlashack