|
Formaður er Helga Elísdóttir,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Starf öldunga innan GKG skiptist í tvennt.
Annars vegar er val öldungasveitar samkvæmt reglugerð. Þjálfun hennar og skipulag vegna keppna svo sem sveitakeppni öldunga innan GSÍ. Það starf heyrir undir Afreksnefnd klúbbsins.
Hins vegar er almennt félagsstarf öldunga þar sem skipaðir eru umsjónarmenn til að hafa umsjón með sameiginlegum spilatímum, sem sumarið 2008 eru á miðvikudögum frá kl. 9,30 til hádegis. Spiladagar eru jafnt fyrir konur og karla, sem náð hafa viðkomandi aldurstakmarki (konur 50 ára og karlar 55 ára). Þessa daga eru spilaðar 9 holur í Mýrinni í punktakeppni, nema annað sé auglýst á töflu í golfskála. Meðaltal úr punktum 6 spiladaga er síðan reiknað til verðlauna, sem afhent verða í SUMARFERÐ. Auk punktakeppni spiladagana er efnt til annarra keppna og sameiginlegra ferðalaga samkvæmt nánari auglýsingum.
Miðvikudaginn 16. júlí var t.d. keppt samkvæmt Texas Scramble fyrirkomulagi. Fyrirhugað er að fara í heimsókn á „vinavöll” miðvikudaginn 30. júlí og í sumarferð í lok ágúst. Upplýsingar um spiladaga og aðra viðburði á vegum öldungastarfsins eru hengdar upp á auglýsingatöflu í golfskála.
Kíkið á Öldungahornið og takið þátt í starfinu.
|