|
Vinningshafar í Rás 2 Open |
|
Skrifað af: Fannar Freyr Ívarsson
|
|
Sunnudagur, 04. júní 2006 18:23 |
Rás 2 Open, fyrsta opna golfmót sumarsins hjá GKG, var haldið á Vífilstaðavelli í gær. Eins og venja er í þessu móti var keppnisfyrirkomulagið Texas Scramble og var fjöldi vinninga í boði en verðlaun voru veitt fyrir efstu fimm sætin auk þess sem þau lið sem enduðu í 10., 20., 25., 50., 60. , 75. , 100. og næst síðasta sæti fengu verðlaun. Einnig var hægt að vinna gífurlegan fjölda aukavinninga, fyrir lengstu upphafshögg og að vera næstur holu í fyrirfram ákveðnum höggafjölda. Athygli vakti að 12.hola vallarins var sú eina þar sem menn þurftu ekki að hafa áhyggjur af mælingum til verðlauna, svo mikið magn verðlauna var gefið.
Almennt var mál manna að mótið hafi tekist vel, enda lék veðrið við þátttakendur og komu mörg lið inn á góðu skori. Reyndar sáu margir sér ekki fært að mæta í verðlaunaafhendinguna og því eru mörg verðlaun enn hérna hjá okkur í klúbbhúsinu og viljum við endilega að þau verði sótt sem fyrst. Til glöggvunar fyrir þá sem ekki vita almennilega hvort þeir hafi unnið sér inn verðlaun þá fylgir hér með þessari frétt listi yfir verðlaunahafa í mótinu. Smellið á "Lesa meira" til að skoða hann.
Mótanefnd og GKG þakka fyrir frábæra þátttöku í mótinu í gær og vonast til að sjá alla aftur að ári. |
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Jóhann Gunnar Stefánsson
|
|
Laugardagur, 03. júní 2006 00:18 |
Sigmundur Einar er efstur á Opna austurríska áhugamannamótinu í Schönborn í Austurríki þegar mótið er hálfnað eftir tvo af fjórum hringjum. Hann lék á 75 höggum í dag og 73 höggum í gær og er því samtals á 2 höggum yfir pari og er í efsta sæti í karlaflokki. Sigmundur lék á 2 höggum yfir parinu í dag með því að fá 14 pör, 3 fugla og einn skolla. |
|
Nánar...
|
|
Flestir félagsmenn spiluðu Skagann í fyrra |
|
Skrifað af: Jóhann Gunnar Stefánsson
|
|
Föstudagur, 02. júní 2006 07:47 |
Skv. skoðanakönnun hér á GKG.IS var Garðavöllur á Akranesi vinsælastur hjá félagsmönnum GKG á síðasta sumri. Spurt var "Hvaða vinavöll GKG spilaðir þú oftast í fyrra"
Alls voru það 280 manns sem tóku þátt 33,2% léku Garðavöll oftast. Svarfhólsvöllur á Selfossi varð í öðru sæti með 26,8% atkvæða, Leiran í Keflavík í 3 sæti með 23,2% atkvæða og Þorláksvöllur í Þorlákshöfn kom síððastur með 16,8%. Við þökkum öllum þeim sem tóku þátt.
Ný skoðanakönnun hefur verið sett af stað þar sem spurt er að því hver af afrekskylfingum okkar komi til með að ná bestum árangri á KB banka mótaröð GSí í sumar.

|
|
|
220 manns á Rásar 2 mótið |
|
Skrifað af: Jóhann Gunnar Stefánsson
|
|
Föstudagur, 02. júní 2006 07:17 |
|
Rásar 2 mótið sem er án ef það mót sem gefur flesta vinninga af öllum golfmótum á íslandi auk þess að vera fjölsóttasta mótið annað árið í röð. Í fyrra léku 216 manns í mótinu. Í ár eru 220 manns skráðir til leiks.
Eins og í fyrra er bryddað upp á þeirri nýbreytni að veitt eru nándarverðlaun eftir 2 og 3 högg á velflestum brautum vallarins hvort heldur er um par 4 eða par 5. Einungis brautir 6, 8, 12 og 16 eru án vinninga. |
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Jóhann Gunnar Stefánsson
|
|
Fimmtudagur, 01. júní 2006 18:23 |
|
Sigmundur Einar er í 2 sæti að loknum fyrsta degi á austurríska áhugamannamótinu sem fram fer á Schloss golfvellinum í Schönborn í Austurríki. Hann lék á samtals 73 höggum sem er par vallarins. Sigmundur fékk alls 2 fugla, 1 örn, 1 skolla og síðan 3 yfir á 3 brautinni eins og áður sagði. Þetta er sannarlega glæsilegur árangur hjá Simma í kjölfar KB-banka mótsins um síðastliðna helgi.
Ottó var hins vegar ekki að gera gott mót endaði á samtals 7 yfir pari. Magnús Lárusson liðsfélagi þeirra úr GKJ endaði síðan á 11 höggum yfir pari. |
|
Ottó og Sigmundur í landsliðið |
|
Skrifað af: Jóhann Gunnar Stefánsson
|
|
Mánudagur, 29. maí 2006 23:32 |
Ottó Sigurðsson og Sigmundur Einar Másson úr GKG halda utan í fyrramálið til að taka þátt í Opna Austurríska áhugamannamótinu fyrir Íslands hönd sem fer fram í Austurríki dagana 1. - 4. júní n.k.
 Ottó Sigurðsson Sigmundur Einar Másson |
|
Nánar...
|
|
Símamótaröðin hefst í vikunni |
|
Skrifað af: Guðmundur Árni Gunnarsson
|
|
Mánudagur, 29. maí 2006 17:54 |
|
Símamótaröðin 2006
Símamótaröðin er flokkaskipt innanfélagsmót sem er á völdum fimmtudögum í sumar. Fyrsta mótið verður fimmtudaginn 1.júní nk. Keppnisfyrirkomulagið ættu flestir að vera farnir að þekkja en hér að neðan eru allar nánari upplýsingar.
Síminn er aðalstyrktaraðili mótaraðarinnar í ár og verða glæsilegir símar í verðlaun fyrir efstu sætin í hverjum flokki. GKG mun einnig veita verðlaun fyrir árangur á einstökum fimmtudögum.
|
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Guðmundur Árni Gunnarsson
|
|
Mánudagur, 29. maí 2006 09:33 |
|
Æfingaferð afrekshóps GKG til Þýskalands – maí 2006
Undanfarin ár hefur afrekshópur GKG farið í sérstaka æfingaferð utanlands. Í ár var flogið til Berlínar með Iceland Express og þaðan förinni heitið til Potsdam, sem er um klukkutíma suðvestur af miðborg Berlínar. Völlurinn sem leikið og æft var á heitir Märkisher Golf Club Potsdam. Æfingaferðin var 16.-23. maí. Þeir kylfingar sem fóru í þessa ferð voru eftirfarandi: Brynjólfur Sigmarsson, Björgvin Smári Kristjánsson, Gunnar Guðjónsson, Guðfinna Halldórsdóttir, Haukur Már Ólafsson, Jón Guðmundsson, Kjartan Dór Kjartansson, Ottó Sigurðsson, Sigmundur Einar Másson, Sigurður Ólafsson og Valgeir Tómasson, Úlfar Jónsson afreksþjálfari GKG. Enginn sérstakur farastjóri var með í för en Ottó sá að mestu um það hlutverk í ferðinni.
|
|
Nánar...
|
|
Simmi endaði í 2.-3. sæti |
|
Skrifað af: Guðmundur Árni Gunnarsson
|
|
Sunnudagur, 28. maí 2006 23:45 |
|
Nú fyrir skömmu lauk leik á fyrsta mótinu á KB Bankamótaröðinni, Ostamótinu á Akranesi. Sigmundur Einar Másson úr GKG hafnaði í 2.-3. sæti. sem var besti árangur okkar manna. Ottó Sigurðsson hafnaði í 4.-5. sæti með góðum hring í dag en aðstæður voru heldur erfiðari í dag en í gær. Magnús Lárusson kylfingur í GKJ sigraði þetta fyrsta stigamót ársins en hann endaði mótið þremur höggum undir pari.
Athygli vakti hve margir keppendur voru úr GKG að þessu sinni og sýnir það glögglega hversu marga góða kylfinga GKG hefur í sínum röðum. Við óskum GKG-ingum til hamingju með árangurinn í mótinu og fylgjumst með hér á gkg.is með næstu mótum.
Lokastaðan á Ostamótinu |
|
Skrifað af: Guðmundur Árni Gunnarsson
|
|
Þriðjudagur, 23. maí 2006 20:32 |
|
Afrekskylfingar í GKG hafa stundað æfingar að kappi í allan vetur og fóru þeir í árlega æfingaferð dagana 16. - 23. maí til Potsdam í Þýskalandi. Æft og spilað var á Markischer Golfclub við hreint frábærar aðstöðu. Einnig léku afrekskylfingar GKG við kylfinga frá hinum fornfræga golfklúbbi Vandsee Golfclub, þar sem Arnar Már Ólafsson er golfkennari. Ferðin var einstaklega vel heppnuð og aðstæður eins og best verður á kosið.
Myndasyrpa frá ferðinni kemur á netið innan skamms |
|
Nánar...
|
|
Nýtt golfvallarsvæði afhent Golklúbbi Kópavogs & Garðabæjar |
|
Skrifað af: Jóhann Gunnar Stefánsson
|
|
Laugardagur, 20. maí 2006 18:44 |
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar fékk í dag, laugardaginn 20. maí kl. 16, formlega afhentan nýjan golfvöll í Leirdal sem er 9 holu viðbót við golfvöll klúbbsins við Vífilsstaði. Undirskriftir fóru fram á 5. teig nýja vallarins.
 Hópurinn saman kominn á 5. teig í Leirdal |
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 51 52 53 54 55 56 57 58 59 60 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |