Áætlun um starf kvennanefndar GKG sumarið 2009

Kvennanefnd 2009 skipa:

Bergþóra Sigmundsdóttir, formaður 565-6529 og 691-0633 Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ; Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Erla Leifsdóttir 659-7908 Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Signhild Borgþórsdóttir 695-7929 Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Sesselja Magnea Matthíasdóttir 848-7171 Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Vigdís Ársælsdóttir 861-4463 Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Kvennanefndin er skipuð sömu konum og störfuðu í henni í fyrra. Starf kvennanefndar sumarið 2009 verður með nokkuð hefðbundnum hætti. Kvennaklúbburinn verður með fasta golftíma alla þriðjudaga frá 19. maí til 1. sept., rástímar eru frá kl. 17:00 – 18:50. Í sumar munum við almennt leika 9 holur á þriðjudögum og leikum því í Mýrinni. Í mótum leikum við 18 holur og verðum þá á Vífilsstaðavellinum að undanskildum mótunum 2. júní og 25. ágúst 2009. Konur verða að skrá sig í þriðjudagstímana með því að senda tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða að hringja í skálann til að skrá sig, s: 897-7773 og 565-7037. Gæta verður að því að skrá kt., grunnforgjöf og vallarforgjöf. Hægt verður að skrá sig á miðvikudegi eftir hádegi til hádegis á leikdag (þriðjudag). Fjórar konur verða saman í holli og tvær skulu vera með grunnforgjöf að 28 og tvær yfir 28. Eins og áður er kvennanefndin með þessu að leitast við að samræma þrjú sjónarmið, þ.e. að konur ráði að einhverju marki með hverri þær spili, reynsla þeirra sem lengra eru komnar skili sér til þeirra sem eru styttra komnar og þá er einnig haft í huga mikilvægi þess að leikhraði okkar verði nokkuð góður.

Greitt er eingöngu fyrir þátttöku í mótum á Vífilsstaðavellinum til m.a. að standa undir kostnaði við verðlaun fyrir árangur og verður gjaldið kr. 1.500, að undanskildu Sólstöðumótinu - Bleika bikarnum, mótsgjaldið á mótinu 2. júní og 25. ágúst 2009 verður kr. 1.000 og GKGkonur greiða ekki mótsgjald á Vífilsstaðavellinum í vinkvennamóti GKG- og GOkvenna. Við þurfum að greiða vallargjald á Urriðavelli þegar við förum þangað. Við munum reyna að semja um lægra vallargjald á þeim velli eins og verið hefur. GKGkonur greiða gjald í Öndverðarnesi þegar við leikum þar. Þátttökugjald í mótum á Vífilsstaðavellinum verður unnt að greiða í gegnum heimabanka inn á reikning kvennaklúbbsins eða með peningum og verður það tilkynnt nánar fyrir hvert mót.

Móta- og skemmtidagskrá kvennaklúbbsins sumarið 2009:

Föstudaginn 15. maí Rauðvínskvöldið

Þriðjudaginn 19. maí Fyrsti golfleikdagur

Þriðjudaginn 2. júní 9 holu þriðjudagsmót

Þriðjudaginn 9. júní Vinkvennamót GO og GKG, Vífilsstaðavöllur

Föstudagskvöldið 19. júní Opið sólstöðumót kvenna, Bleiki bikarinn

Mánudaginn 22. júní Vinkvennamót GKG og GO, Urriðavöllur

Þriðjudaginn 11. ágúst Óvissuferð

Þriðjudaginn 25. ágúst Hatta- og kjólamót

Laugardaginn 5. september Lokamót kvennaklúbbsins

Fastir golftímar kvenna alla þriðjudaga kl. 17:00-18:50

Í mótslok fyrirhugaðra móta verður verðlaunaafhending í skála. Lokamót verður 5. september og verða þá afhent afreksverðlaun til þeirrar konu sem náð hefur flestum punktum yfir sumarið samkvæmt innlögðum skorkortum í skipulögðum leiktíma kvennaklúbbsins og framangreindum mótum. Til grundvallar eru lögð fimm bestu skorkortin á 9 holum. Munið að skila inn skorkortum í sérmerktan kassa kvennaklúbbsins.

Við munum leitast við að koma fréttum úr starfinu á heimasíðu GKG og myndum á myndasíðu klúbbsins.

Við hefjum tímabilið með hinu árlega “Rauðvínskvöldi” kvennaklúbbsins og verður það eins og að framan greinir föstudaginn 15. maí í golfskálanum.

Kvennanefnd áskilur sér rétt til breytinga á ofanrituðu skipulagi ef nauðsyn krefur.

Með golfkveðju,
Garðabæ 5. maí 2009
Bergþóra Sigmundsdóttir

 
Joomla Templates by Joomlashack