|
Unglinganefnd GKG 2008-2009 skipa eftirtaldir:
- Gunnar Jónsson, formaður,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
- Jón Hörðdal Jónasson,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
- Ragnheiður Sigurðardóttir,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Megintilgangur unglinganefndarinnar er að halda utan um og efla unglingastarf klúbbsins. Í samræmi við það hefur unglinganefndin sett sér þessi meginmarkmið:
- Að veita unglingum í GKG, afreksmönnum jafnt og þeim sem skemmra eru á veg komnir, aðbúnað og atlæti sem jafnast á við það sem best gerist hjá öðrum golfklúbbum.
- Að styðja eftir föngum við bakið á íþróttastjóra og þjálfurum í því skyni að þeir megi ná sínum markmiðum.
- Að efla samstöðu unglinganna og félagsanda.
- Að efla samstöðu foreldra unglinganna og fá fleiri til þátttöku í því að búa unglingunum gott atlæti við ástundun íþróttarinnar.
- Að leita ráða til þess að fjölga stúlkum sem leika golf.
- Að tryggja öflugt upplýsingaflæði til foreldra og barna í því skyni að auka þátttöku þeirra enn.
- Að fjölga keppendum frá GKG á unglingamótum GSÍ og unglingamótaröð GKG.
Unglinganefnd heldur úti sérstakri mótaröð fyrir unglinga í GKG og keppnisdagar eru þegar komnir inn á mótaskrá GKG. Þá stendur unglinganefnd fyrir svokölluðu niðjamóti hvert sumar, en það er liðakeppni þar sem hvert tveggja manna lið er þannig skipað að annar liðsmaðurinn er afkomandi hins. Ágóði af niðjamótinu rennur í ferðasjóð afreksunglinga GKG, en síðustu fjögur ár hafa bestu unglingar GKG verið sendir í æfingaferð til útlanda í kringum páska. Æfingaferðin hefur verið fjármögnuð af unglingunum sjálfum með allskyns söfnunum og kemur því ekki af almennri fjárveitingu til unglingastarfs GKG. Þá stendur GKG fyrir a.m.k. einum fundi árlega með unglingunum og aðstandendum þeirra, þar sem starfið er kynnt, markmið, æfingaáætlun og annað það sem talið er skipta máli. Með því gefst aðstandendum einnig tækifæri til þess að kynnast unglinganefndarmönnum og ekki síst þjálfurum krakkanna, bera upp spurningar og gera athugasemdir.
|