Svalamótaröð GKG 2009
Jón Hörðdal   
Miðvikudagur, 24. júní 2009 23:30

svaliGKG býður upp á barnamótaröð í þriðja skipti sumarið 2009 og nefnist hún Svalamótaröðin í ár eins og í fyrra. Þátttökurétt hafa allir félagsmenn GKG sem eru 12 ára eða yngri (fæddir 96 eða síðar) og hafa enga eða hámarksforgjöf (36 hjá piltum og 40 hjá stúlkum). Athugið að þeir sem eru byrjaðir að lækka forgjöf sína hafa því ekki þátttökurétt á þessum mótum.

Mótaröðin er punktakeppni sem fer fram á Mýrinni hjá GKG og eru spilaðar 9 holur í hverju móti Allir munu síðan spila með vallarforgjöf upp á 54 (27 miðað við 9 holur) í fyrstu mótunum og lækka síðan eftir árangri (hver punktur umfram 18 á 9 holum lækkar forgjöfina um 0.5 og þeir sem lækkuðu sig með þessi kerfi í fyrra byrja með þá forgjöf sem þeir enduðu með síðasta ár). Mótin verða 4 talsins í sumar og 3 bestu telja síðan til stiga og verða síðan veitt verðlaun fyrir bestan árangur í lok sumars.

Þátttaka er ókeypis en til þess að geta tekið þátt þarf að skrá sig hér fyrir hvert mót. Skráningu þarf að vera lokið á sunnudagskvöldi fyrir mótsviku en spilað er á þriðjudögum. Ræst er út á milli 16:00 og 18:00 en staðfesting á rástíma er send út degi eftir að skráningu lýkur fyrir hvert mót.

Gerð er krafa um að foreldri og/eða reyndari kylfingur fylgi hverjum keppanda á þessum mótum, bæði til þess að tryggja að allt fari rétt fram og eins til þess að þau læri sem mest af þessari þátttöku.


Mótsdagar eru eftirfarandi:

30.júní - Úrslit

14.júlí - Úrslit
28.júlí - Úrslit
11.ágúst - Úrslit

Á haustmánuðum, að loknu síðasta mótinu, verður svo vegleg lokahátið ásamt verðlaunaafhendingu.

Umsjónarmaður mótaraðarinnar er Jón Hörðdal og er hægt að senda honum póst með því að smella hér.

 
Joomla Templates by Joomlashack