GKG
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
Forsíða
Um GKG
Stjórn
Starfsfólk
Þjónusta í skála
Gjaldskrá
Markmið
Vellirnir
Forgjafartöflur
Vélakostur
Mótahald
Mótaskrá GKG
Fyrirkomulag móta
Þjónusta við mót
Vinaklúbbar
Umsóknir
Félagsstarf
Afreksnefnd
Kvennanefnd
Vallarnefnd
Öldunganefnd
Unglinganefnd
Fréttir af unglingastarfinu
Svalamótaröð GKG 2009
Unglingamótaröð GKG 2009
Barnanámsskeið GKG
Mótanefnd
Myndir
Nýliðar
Nýliðanámskeið
Að fá forgjöf
Kennsla
Skráning í GKG
EGA forgjafarkerfið
Skjöl
Leit
Hafa samband
Sumarnámskeið 2009
Aldur, tímasetning og verð:
Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 5-12 ára og er þeim skipt í tvo hópa, 5 til 8 og 9 til 12 ára.
Haldin verða 2 námskeið á dag í 8 vikur, eða alls 16 vikulöng golfnámskeið. Hægt er að velja um námskeið kl. 9-12 eða 13-16.
Vikan kostar
8.500 krónur
.Veittur er 20% systkinaafsláttur. Einnig er veittur 20% afsláttur ef sótt eru fleiri en eitt námskeið. Þá verður einnig veittur 20% afsláttur af þeim námskeiðum sem einungis standa í fjóra daga. Hámarksafsláttur fyrir hvert barn á námskeiði er samt sem áður 20%.
Dagsetningar:
8. - 12. júní
15. - 19. júní (4 dagar)
22. - 26. júní
29. júní - 3. júlí
Meistaramótsvikan engin námskeið
13. - 17. júlí
20. - 24. júlí
27. - 31. júlí
4. - 7. ágúst (4 dagar)
Dagskrá:
Markmið námskeiðanna er að kynna golfíþróttina fyrir börnunum. Farið verður í alla helstu þætti golfleiksins, allt frá upphafshöggum til pútta og verður eitthvað sérstakt tekið fyrir á hverjum degi, gjarnan í formi golfleikja ýmiss konar. Einnig verður lögð áhersla á að kynna golfsiði og golfreglur fyrir nemendum. Á námskeiðunum verður nemendum skipt í tvo aldurshópa, 5 til 8 og 9 til 12 ára. Áherslumunur verður á námsefninu eftir aldurhópunum og má því segja að hér séu tvö námskeið í gangi í einu. Meira verður lagt upp úr tæknilegum atriðum, krefjandi æfingum og golfreglukunnáttu í eldri hópnum. Yngri hópurinn mun frekar fást við léttar og skemmtilegar æfingar, keppnir af ýmsum toga og örlítið af golfsiðum og reglum. Þá verður reynt að lífga upp á námskeiðin með óhefðbundnum uppákomum og dagarnir brotnir upp með fjölbreyttum leikjum og öðrum íþróttum þannig að námskeiðið ætti að henta öllum krökkum með mismunandi áhugamál. Námskeiðum lýkur með grilli og afhendingu viðurkenningarskjals frá GKG.
Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði er 30
Leiðbeinendur:
Yfirumsjónarmaður verður Haraldur Þórðarson, sem er menntaður íþróttakennari og golfkennari hjá GKG. Aðrir leiðbeinendur koma úr hópi afrekskylfinga úr klúbbnum, á aldrinum 15 til-21 árs, langflestir eru þeir með verulega reynslu af námskeiðahaldi. Þess er sérstaklega gætt að hópar undir umsjón leiðbeinanda verði ekki skipaðir fleiri en 6 börnum.
Aðsetur:
Barnaskóli Hjallastefnunnar, sem stendur öndvert við skála GKG, mun að nýju lána GKG kennslustofu sem miðstöð fyrir barnanámskeiðin. Þátttakendur mæta því þar í upphafi dags og verða sóttir þangað í lok dags. Börnin munu vitaskuld ekki fara yfir veginn nema í fylgd með leiðbeinendum.
Umsóknareyðublað:
Nafn kylfings
*
Kennitala kylfings
*
Heimilisfang
*
Póstnúmer
Sveitarfélag
*
Forráðamaður
*
Kennitala forráðamanns
*
Netfang
*
Heimasími
Farsími
Vinnusími
Dagsetning námskeiðs
*
Senda skráningu
Joomla Templates by Joomlashack