|
Úrslit úr annari umferð Svalamótaraðarinnar |
|
Alexander Jensen Hjálmarsson
|
|
Fimmtudagur, 16. júlí 2009 13:37 |
|
Komin eru inn úrslitin úr annari umferð Svalamótaraðarinnar, sjá hér. |
|
Annað mótið á Svalamótaröðinni - Skráningu lýkur á sunnudaginn |
|
Jón Hörðdal
|
|
Fimmtudagur, 09. júlí 2009 09:31 |
Næstkomandi þriðjudag verður annað mótið af 4 í sumar á Svalamótaröð GKG. Við minnum á að þetta er mót fyrir alla 12 ára og yngri krakka í GKG sem eru að byrja í golfi og hafa ekki ennþá lækkað forgjöf sína. Mjög góð þátttaka var á síðasta móti og vonumst við til þess að sjá enn fleiri á þriðjudaginn en til þess að taka þátt verður að skrá sig hér á síðunni fyrir lok sunnudagsins 12.júlí. Allar nánari upplýsingar er hægt að sjá með því að smella hér. |
|
|
Fyrsta mótið á Svalamótaröð GKG á þriðjudaginn |
|
Jón Hörðdal
|
|
Sunnudagur, 28. júní 2009 17:17 |
|
Fyrsta mótið af 4 í sumar á Svalamótaröð GKG fer fram á Mýrinni á þriðjudaginn (30.júní). Þetta er mót fyrir 12 ára og yngri krakka sem eru að byrja í golfi og hafa ekki ennþá lækkað forgjöf sína. Allar nánari upplýsingar er hægt að sjá með því að smella hér. Við hvetjum sérstaklega alla krakkana sem eru að æfa hjá okkur og hafa tök á að taka þátt í þessari skemmtilegu mótaröð. |
|
Skráningum á sumaræfingar lokið - Metþátttaka |
|
Jón Hörðdal
|
|
Sunnudagur, 07. júní 2009 00:00 |
|
Nú er lokið skráningum á sumaræfingar hjá börnum og unglingum GKG fyrir sumarið 2009. Ríflega 140 krakkar eru skráðir sem er töluvert fleira en síðastliðin sumur. Stundatöflu og hópaskiptingu má sjá með því að smella hér. Enn er hugsanlegt að komast að og ef menn óska eftir að láta athuga það þá þarf að senda tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it og láta fylgja með allar sömu upplýsingar og komu fram á skráningareyðublaði okkar sem finna má hér. |
|
|
Unglingamótaröð GKG 2009 hefst á fimmtudag |
|
Jón Hörðdal
|
|
Þriðjudagur, 16. júní 2009 00:00 |
|
Fyrsta mótið á unglingamótaröð GKG 2009 okkar fer fram á fimmtudaginn, 18.júní. Ákveðið hefur verið að framlengja skráningu út morgundaginn 17.júní þannig að sem flestir sem vilja geti tekið þátt. Smellið hér til þess að skrá ykkur. Við hvetjum alla sem eru að æfa og eru komnir með forgjöf að taka þátt í þessari skemmtilegu mótaröð. |
|
Skráning hafin á sumaræfingar 2009 |
|
Jón Hörðdal
|
|
Fimmtudagur, 14. maí 2009 00:00 |
|
Nú er hafin skráning á sumaræfingarnar hjá GKG og er hægt að skrá sig með því að smella hér og þar er einnig að finna allar nánari upplýsingar um æfingarnarnar og stundatöfluna. Lokað verður fyrir skráningar 29.maí.
Lagt verður á hóflegt skráningargjald, eða 10.000 kr. Greiðsluseðill verður sendur á kennitölu foreldris/forráðamanns og þarf að vera búið að greiða hann áður en æfingar hefjast í byrjun júní . Allar nánari upplýsingar veitir íþróttastjóri GKG, Úlfar Jónsson,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it og formaður unglinganefndar GKG, Gunnar Jónsson,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it . |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 9 |