|
Unglingamótaröð GKG er nú haldin í fimmta sinn. Þetta er flokkaskipt punktamót með fullri forgjöf og er hugsuð jafnt fyrir reyndari kylfinga sem og nýliða. Skipt er í flokka annars vegar eftir kyni og hins vegar aldri þ.e. 17-18 ára, 15-16 ára, 13-14 ára og 12 ára og yngri.
Fjöldi glæsilegra vinninga er í boði en veitt verða verðlaun fyrir efstu sætin í hverjum flokki (3 af 5 bestu mótum telja) auk þess sem veitt verða verðlaun fyrir flesta punkta í hverju móti.
Skráning fer fram hér á netinu og er gerð krafa um að skráningu sé lokið fyrir miðnætti á mánudagskvöldi í mótsviku en spilað er á fimmtudögum. Ræst verður út á eftirtöldum tímum: 08:00-09:00; 13:00-15:00 og 17:00-17:30. Mótsgjald er kr. 500.- á mann fyrir hvert mót og þarf að staðgreiða það hjá ræsi áður en farið er á teig. Á haustmánuðum, að loknu síðasta mótinu, verður svo vegleg lokahátið ásamt verðlaunaafhendingu.
Keppnisdagar: 18.júní - Úrslit 2.júlí - Úrslit 23.júlí - Úrslit 6.ágúst - Úrslit 20.ágúst - Skráning í mót
|