|
Blátt Áfram - styrktarmóti Kiwanisklúbbsins Eldeyjar lokið |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Laugardagur, 05. júní 2010 19:17 |
|
Nú er lokið vel heppnuðu styrktarmóti Kiwanisklúbbsins Eldeyjar. Þetta árið eins og í fyrra var mótið til styrktar Blátt Áfram, sem eru sjálfstæð félagasamtök, en tilgangur samtakanna er að efla forvarnir gegn kynferðilslegu ofbeldi á börnum á Íslandi. Úrslit urðu þessi:
|
Nafn 1 |
Nafn 2 |
Forgj |
Skor |
Nettó |
| 1. verðl. |
Alfreð Brynjar Kristinsson |
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir |
-2 |
60 |
62 |
| 2. verðl. |
Jóhann Sigurðsson |
Einar Björgvin Birgisson |
6 |
69 |
63 |
| 3. verðl. |
Karl Jón Karlsson |
Freyr Hreiðarsson |
5 |
68 |
63 |
| 4. verðl. |
Guðjón Reyr Þorsteinsson |
Atli Örn Sævarsson |
3 |
67 |
64 |
| 5. verðl. |
Örn Rúnar Magnússon |
Andri Magnússon |
5 |
69 |
64 |
| 6. verðl. |
Pétur Freyr Pétursson |
Kristján Þór Einarsson |
-3 |
62 |
66
|
Heildar úrslit má sjá með því að ýta hér
GKG þakkar öllum þátttakendum fyrir vel heppnað mót og stuðninginn við gott málefni. |
|
Fundargerð foreldrafundar 2. júní |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Föstudagur, 04. júní 2010 11:39 |
|
Á miðvikudag s.l. var haldinn foreldrafundur til að kynna barna- og unglingastarfið í sumar.
Hér eru nokkrir punktar um það helsta sem var farið yfir.
- Gunnar Jónsson (form. unglinganefndar) opnaði fundinn og sagði m.a. frá því að unglinganefnd og afreksnefnd hefði verið sameinuð í íþróttanefnd m.a. til að samþátta barna- og unglingastarfið með afreksstarfinu.
- Gunnar Páll (formaður afreksnefndar) kynnti Gæðahandbók GKG sem var gefin út í vor. Eintak var sent á þennan netfangalista í seinustu viku. Úlfar fór yfir þann hluta handbókarinnar er snýr að þjálfun og skipulagi. Hvet ykkur til að skoða bókina vel og koma með athugasemdir, þetta er 1. útgáfa og hún verður uppfærð árlega.
- Rætt var um foreldrastarfið og leiðir til að efla það. Golfið er nokkuð frábrugðið hópíþróttunum en við viljum gjarnan efla félagslega hlutann meðal barnanna og einnig meðal foreldra. Við auglýsum því eftir áhugasömum til að koma í foreldraráð og vísa ég í Gæðahandbókina á bls. 7 varðandi markmið Foreldrastarfs.
- Dagatal með helstu viðburðum sumarsins. Smelltu hér til að sjá dagatalið.
- Þjálfarar sumarsins kynntir. Gestur Gunnarsson, Guðjón Henning Hilmarsson, Haukur Már Ólafsson, Sigmundur Einar Másson, Birgir Leifur Hafþórsson, Haraldur Þórðarson og Derrick Moore. Undirritaður mun ekki sinna þjálfun beint í sumar en fylgist með og aðstoðar með öðrum hætti.
- Varðandi keppnir þá eru mismunandi leiðir sem henta vonandi öllum. Sjá ýmsar leiðir hér fyrir neðan
- Keppnir/leikir á æfingum fyrir þau sem eru að byrja og/eða treysta sér ekki í mót.
Innanfélagsmót GKG
- Svalamótaröðin fyrir 12 ára og yngri, haldið í Mýrinni. Smelltu hér til að sjá uppl.
- Unglingamótaröð GKG. Haldið á Leirdalsvelli. Smelltu hér til að sjá uppl.
- Meistaramót GKG. Haldið á Leirdalsvelli. Smelltu hér til að sjá uppl. Mmótið er fyrir þau sem hafa lækkað forgjöf sína.
Opin unglingamót
- US Kids mótaröðin fyrir 12 ára og yngri. Ætluð þeim sem eru orðin ágætlega vön að spila, þurfa ekki að vera komin með forgjöf.
- Áskorendamótaröð GSÍ. Eins dags mót fyrir þau sem eru byrjuð að lækka forgjöf og vilja auka keppnisreynslu sína. Keppt í flokkum 14 ára og yngri, 15-16 ára og 17-18 ára. Stökkpallur yfir í Arionbankamótaröðina.
- Arionbanka mótaröð GSÍ. Tveggja daga mót fyrir forgjafarlægri kylfinga. Keppt í sömu flokkum og í Arionbanka mótaröðinni.
Sjá dagssetningar í dagatalinu.
Með bestu kveðjum og þökkum fyrir góða mætingu og sýndan áhuga.
Úlfar Jónsson, Íþróttastjóri GKG |
|
Úrslit í 9 holu kvennamóti |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Miðvikudagur, 02. júní 2010 08:28 |
|
Vel heppnuðu 9 holu kvennamóti er lokið. Úrslit í mótinu urðu:
1. verðlaun Kristín Björg Jónsdóttir 20 punktar 2. verðlaun Birna B. Aspar 20 punktar 3. verðlaun Elísabet Halldórsdóttir 19 punktar 4. verðlaun Elsa Björk Pétursdóttir 19 punktar 5. verðlaun Kolbrún Jónsdóttir 19 punktar
Nándarverðlaun:
Næst holu á 2 braut Birna B. Aspar 3,44m Næst holu á 9 braut Rósa M. Sigursteinsdóttir 6,65m
Kvennanefn þakkar öllum konum fyrir þátttökuna |
|
|
Vinkvennamót GO / GKG 7. júní n.k. |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Mánudagur, 31. maí 2010 09:31 |
|
GKG konur
Munið að skrá ykkur í vinkvennamót GO/GKG en fyrrihluti mótsins fer fram á Urriðavelli mánudaginn 7. júní nk. Skráning er hafin á www.golf.is. Veitt eru verðlaun fyrir besta samanlagðan einstaklingsárangur, þ.e. flesta punkta (þrenn verðlaun). Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta samanlagða skorið fyrir báða dagana. Leikið verður hjá okkur þriðjudaginn 15. júní nk.
Kveðja Kvennanefndin |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Laugardagur, 29. maí 2010 18:36 |
|
Opna Atlantsolíu mótið fór fram í dag í blíðskaparveðri á Leirdalsvelli.
Alls tóku 123 kylfingar þátt í mótinu. Menn og konur spiluðu glæsilegt golf og náði Símon Kristjánsson þeim skemmtilega árangri að fara holu í höggi á 11. holu vallarins. Einnig náði kappinn í nándarverðlaun á 2. holu og 39 punktar kórónuðu góða frammistöðu hans í dag.
Annars urðu úrslitin eftirfarandi:
Punktakeppni m/ forgjöf
1.sæti Björn Ragnar Björnsson 43 punktar 2.sæti Helgi Róbert Þórisson 42 punktar (betri á síðustu 6 holunum) 3.sæti Karl Hólm 42 punktar
Höggleikur án forgjafar
1.sæti Birgir Leifur Hafþórsson 67 högg 2.sæti Ottó Sigurðsson 69 högg (betri á síðustu 6 holum) 3.sæti Þórður Ingi Jónsson 69 högg
Nándarverðlaun:
2. hola – Símon Kristjánsson 210 cm frá holu 13. hola – Tómas Magnús Þórhallsson 324 cm frá holu 17. hola – Sigurður Sigurðsson 216 cm frá holu
Við þökkum Atlantsolíu og öllum þeim kylfingum sem tóku þátt í mótinu fyrir góðan dag! |
|
Vel heppnuð æfingaferð meistaraflokks |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Föstudagur, 28. maí 2010 11:44 |
|
Meistaraflokkur karla og kvenna í GKG fór í vel heppnaða æfingaferð á Kiðjabergsvöllinn s.l. Hvítasunnuhelgi. Alls voru 20 kylfingar sem fóru austur, auk þjálfara. Gist var í sumarbústöðum við golfvöllinn og dagarnir vel nýttir til leiks og æfinga, en Íslandsmótið í höggleik fer fram á Kiðjabergsvellinum í sumar, og var þetta hugsað sem liður í undirbúningi fyrir stærsta mót sumarsins. Þátttakendur söfnuðu fyrir ferðinni í vetur með ýmsum hætti. Einnig styrktu Sild og fiskur, og Mjólkursamsalan með matarpökkum og fá þau fyrirtæki bestu þakkir fyrir.

Aðstæður voru allar hinar bestu á Kiðjabergi, völlurinn í frábæru ásigkomulagi og veðrið hið besta. Aðstandendur á Kiðjbergi fá þakkir fyrir góðan völl og góðar móttökur. Leiknar voru 18 holur laugardag, sunnudag og mánudag, en einnig æft eftir golfhringina með sérstakri áherslu á stutta spilið. Einnig var lögð töluverð áhersla á leikskipulag og huglæga þjálfun, enda er Kiðjabergsvöllurinn krefjandi og þurfa leikmenn að vera í góðu leikformi til að ná góðum árangri þar.
Meistaraflokkur GKG hefur æft vel í vetur og kemur vel undirbúinn til leiks fyrir fyrsta stigamótið í GSÍ mótaröðinni, sem fer fram í Vestmannaeyjum, og verður spennandi að fylgjast með okkar fólki þar.


|
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Fimmtudagur, 27. maí 2010 13:40 |
|
KONUR Í GKG
Kvennamót 1. júní 2010!
9 holu punktamót verður þriðjudaginn 1. júní nk. í Mýrinni í kvennatímanum. Hámarks leikforgjöf er 48. Skráning fer fram á www.golf.is. Mótsgjald er kr. 1.000 og greiðist við upphaf móts með peningum eða með því að leggja inn á reikning kvennanefndar 1135-05-423727, kt. 220550-3979.
Kveðja, Kvennanefndin |
|
Egill Ragnar sigraði í fyrsta stigamóti unglinga |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Þriðjudagur, 25. maí 2010 11:28 |
|
Fyrsta móti sumarsins í GSÍ mótaröð unglinga lauk um helgina í Leirunni og náðu keppendur GKG margir hverjir mjög góðum árangri. Egill Ragnar Gunnarsson gerði sér lítið fyrir og sigraði í flokki 14 ára og yngri drengja, lék mjög glæsilega á 71 og 72, eða einum undir á 36 holum. Hægt er að sjá úrslit allra keppenda með því að smella hér.

Hópur verðlaunahafa í stigamótinu. Egill Ragnar er lengst til hægri.
Einnig var keppt í Áskorendamótaröð GSÍ í Sandgerði, en leiknar voru 18 holur. Þátttaka var mjög góð frá GKG og árangur sömuleiðis, en í flokki 14 ára og yngri náðu GKG kylfingar 2.-5. sæti (af 39), þar á meðal Sigurður Garðarsson, sem lék á 84 höggum, aðeins 8 ára gamall! Úrslit allra keppenda er hægt að sjá með því að smella hér.
Næsta GSÍ stigamót unglinga fer fram helgina 5.-6. júní á Korpúlfsstaðavelli, og Áskorendamótaröðin verður 5. júní hjá Kili Mosfellsbæ. |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Fimmtudagur, 20. maí 2010 15:09 |
|
Ágætu kylfingar
Skráning er nú hafin á Opna Atlantsolíumótið sem verður haldið laugardaginn 29. maí á Leirdalsvelli. Keppnisfyrirkomulagið er punktakeppni með forgjöf og höggleikur án forgjafar. Nú er um að gera að kjósa rétt og skrá sig í fyrsta opna mót sumarsins
Skráning fer fram inná www.golf.is |
|
Skráning á sumaræfingar GKG hafin |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Þriðjudagur, 18. maí 2010 11:13 |
|
Skráning á sumaræfingar barna og unglinga, sem eru félagar í GKG, er hafin og má sjá æfingatöfluna með því að smella hér. Þessi tafla gildir frá 14. júní – 20. ágúst. Vonandi henta tímasetningarnar sem flestum. Æfingar verða þrisvar í viku, þ.e. 2x1 klst og 1x2 klst spilæfing.
Skráning fer fram með því að smella hér og fylla út umsóknarformið. Skráningum lýkur 6. júní.
Skráningargjald fyrir sumaræfingarnar er kr. 10.000 og gildir það fyrir æfingar til 17. september, en ný æfingatafla tekur við 23. ágúst þegar skólar hefjast. Gott er að skrifa í athugasemdadálkinn ef óskað er eftir að fara í sérstakan hóp innan aldursflokksins eða ef vinir/vinkonur vilja æfa saman. Ef þátttakandi er með forgjöf vinsamlegast setjið rétta forgjöf í þann reit.
Bestu kveðjur, Úlfar Jónsson, Íþróttastjóri GKG |
|
Opnunarmót Leirdalsvallar |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Laugardagur, 15. maí 2010 20:28 |
|
Opnunarmót Leirdalsvallar fór fram í dag og fór mótið vel fram. Úrslit úr mótinu eru eftirfarandi
Punktakeppni kk 1. sæti - Björn Ragnar Björnsson 40 punktar 2. sæti - Emil Þór Ragnarsson 39 punktar (betri á seinni 9 holunum) 3. sæti - Gísli Guðbjörnsson 39 punktar
Punktakeppni kvk 1. sæti - Guðfinna Halldórsdóttir 37 punktar 2. sæti - Signhild B. Borgþórsdóttir 33 punktar 3. sæti - Ásta Hólmfríður Bragadóttir 32 punktar (betri á seinni 9 holunum)
Nándarverðlaun 4. hola - Emil Þór Ragnarsson 13. hola - Jón Ögmundsson
Vinningshafar geta nálgast verðlaun sín í Proshop á milli 8-22 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |