Nýliðar

Formaður nýliðanefndarinnar er Úlfar Jónsson

Nýliðanefnd GKG hefur mikinn metnað til þess að byggja upp góða kylfinga til framtíðar og hefur nefndin því útbúið kerfisbundna
fræðslu fyrir nýliða sem ganga í raðir GKG sem miðar að því að hjálpa fólki með golftæknina og kynna þeim golfreglurnar sem og siðareglur. Það er von nefndarinnar að þetta verði til þess að okkar nýliðum líði vel á golfvellinum og fyrir klúbbinn skilar þetta betri umgengni og leikhraða.

Nýliðastefna GKG
Árið 2004 var ákveðið að nýliðar GKG yrðu að fara í gegnum ákveðið ferli áður en þeir fengu afhent pokamerki, forgjöf og grænt ljós á aðalvöll GKG. Þetta ferli byggist upp á því að nýliðar klúbbsins verða að fara í gegnum grunntækniþjálfun hjá íþróttastjóra og sækja einn reglufund hjá GKG. Þess má geta að krafist er af nýliðum klúbbsins að þeir gangi vel um völlinn og að þeir hafi grunnþekkingu á reglum. Farið verður í grunntækni auk þess sem nýliðar eru skyldugir að sitja reglufund þar sem farið verður í siðareglur, reglur vallar og almennar golfreglur.

Þegar þessu er lokið gefur íþróttastjóri samþykki sitt og fólki verður vísað á skrifstofur GKG að sækja pokamerki og til að fá forgjöf.

Árið 2006 voru kröfurnar hertar á nýliða GKG, og bætist því við reglupróf og verklegt próf í golftækni. Ferlið verður því eftirfarandi:

  1. Einstaklingsþjálfun þar sem farið verður í grunntækni.
  2. Reglufundur: siðareglur, reglur vallar og almennar golfreglur.
  3. Reglupróf, 30. spurningar: 20 regluspurningar og 10 siðaregluspurningar.
  4. Verklegt próf sem verður uppbyggt á eftirfarandi máta:
    1. Full högg á æfingarsvæði og fyrirfram ákveðin lengd verður að nást.=stig
    2. Vipp, af fyrirfram ákveðni fjarlægð.=stig
    3. Pútt, af fyrirfram ákveðni fjarlægð.=stig
    4. Spilaðar verða 4 holur og ákveðinn punktafjöldi verður að nást.=stig

Útkoman úr prófinu verður að ná ákveðnum staðli (stig) til að standast prófið, annars verður viðkomandi að endurtaka prófið.

Undantekningar:

  • Nýjir meðlimir sem koma frá öðrum klúbbum með skráða forgjöf
  • Börn og unglingar.
  • Kylfingar sem ekki hafa verið í klúbb í x-tíma en hafa einhvern tíma spilað með forgjöf og eru að byrja aftur

Í valmyndinni efst er síðan að finna allt sem viðkemur nýliðum í klúbbnum, svo sem upplýsingar um skráningu, námskeið, kennslu og fleira.

 
Joomla Templates by Joomlashack