|
Skrifað af: Jón Hörðdal
|
|
Miðvikudagur, 24. júní 2009 23:30 |
|
GKG býður upp á barnamótaröð í þriðja skipti sumarið 2010 og nefnist hún Svalamótaröðin í ár eins og undanfarin tvö ár. Þátttökurétt hafa allir félagsmenn GKG sem eru 12 ára eða yngri (fæddir 98 eða síðar) og hafa enga eða hámarksforgjöf (36 hjá piltum og 40 hjá stúlkum). Athugið að þeir sem eru byrjaðir að lækka forgjöf sína hafa því ekki þátttökurétt á þessum mótum en er bent á Unglingamótaröð GKG.
Mótaröðin er punktakeppni sem fer fram á Mýrinni hjá GKG og eru spilaðar 9 holur í hverju móti. Allir munu síðan spila með vallarforgjöf upp á 54 (27 miðað við 9 holur) í fyrstu mótunum og lækka síðan eftir árangri (hver punktur umfram 18 á 9 holum lækkar forgjöfina um 0.5 og þeir sem lækkuðu sig með þessi kerfi í fyrra byrja með þá forgjöf sem þeir enduðu með síðasta ár). Keppt er í flokkum 10-12 ára drengja og stúlkna og 9 ára og yngri drengja og stúlkna. Mótin verða 4 talsins í sumar og 3 bestu telja síðan til stiga og verða síðan veitt verðlaun fyrir bestan árangur í lok sumars. Allir fá þátttökuverðlaun.
Þátttaka er ókeypis en til þess að geta tekið þátt þarf að skrá sig hér að neðan fyrir hvert mót. Skráningu þarf að vera lokið á þriðjudagskvöldi fyrir mót en spilað er á fimmtudögum. Ræst er út á milli 16:00 og 18:00 en staðfesting á rástíma er send út degi eftir að skráningu lýkur fyrir hvert mót.
Gerð er krafa um að foreldri og/eða reyndari kylfingur fylgi hverjum keppanda á þessum mótum, bæði til þess að tryggja að allt fari rétt fram og eins til þess að þau læri sem mest af þessari þátttöku.
Mótsdagar eru eftirfarandi:
24.júní-úrslit - 15.júlí-úrslit - 29.júlí-úrslit - 12.ágúst-úrslit
Á haustmánuðum, að loknu síðasta mótinu, verður svo vegleg lokahátið ásamt verðlaunaafhendingu.
|