|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Þriðjudagur, 17. ágúst 2010 15:26 |
|
Um síðustu helgi tóku karla- og kvennasveit GKG þátt í sveitakeppni GSÍ. Árangur sveitanna í báðum flokkum var glæsilegur. Kvennasveitin náði sínum besta árangri með því að ná öðru sæti á heimavelli eftir að hafa tapað í úrslitaleik á móti GR. Stelpurnar léku glæsilegt golf og sigruðu alla 4 andstæðinga sína á leiðinni í úrslitaleikinn.
Karlasveitin lék á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili. Karlasveitin tapaði naumlega í æsispennandi undanúrslitaleik gegn GKJ en náði síðan þriðja sætinu örugglega með sigri á GK.
Frábær árangur hjá báðum sveitum!

|
|
Sveitakeppni unglinga - sveitir GKG |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Þriðjudagur, 17. ágúst 2010 10:01 |
|
Sveitir GKG unglinga hafa verið valdar til að keppa í Sveitakeppni GSÍ dagana 20.-22. ágúst. Mótið er tvískipt og er haldið í flokkum pilta og stúlkna 18 ára og yngri hjá Golfklúbbi Suðurnesja annarsvegar, og í flokkum drengja og stúlkna 15 ára og yngri hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar hinsvegar.
Til hliðsjónar við val var m.a. miðað við árangur í GSÍ mótunum, Meistaramóti GKG, Unglingamótaröðinni, forgjöf, ástundum við æfingar og sýndan áhuga.
Eftirtaldir skipa sveitir GKG:
|
| Þorlákshöfn |
|
| 15 ára og yngri stúlkur |
| Elísabet Ágústsdóttir |
| Erna Rún Ólafsdóttir |
| Borg Dóra Benediktsdóttir |
| Helena Kristín Brynjólfsdóttir |
| Ásthildur Lilja Stefándóttir |
| Gunnhildur Kristjánsdóttir |
|
| Liðsstjóri: Erna Valdís/Hrafnhildur |
|
| 15 ára og yngri drengir |
|
| A sveit |
| Egill Ragnar Gunnarsson |
| Ragnar Már Garðarsson |
| Aron Snær Júlíusson |
| Kristófer Orri Þórðarson |
| Óðinn Þór Ríkharðsson |
| Þórður Örn Reynisson |
|
| Liðsstjóri: Sigmundur Einar Másson |
|
| B-sveit |
| Sverrir Ólafur Torfason |
| Máni Geir Einarsson |
| Einar Valberg Eiríksson |
| Gunnar Valdimar Johnsen |
| Elías Björgvin Sigurðsson |
| Sindri Sigurður Jónsson |
|
| Liðsstjóri: Guðbjartur Gunnarsson |
|
|
| Leiran GS |
|
| 16-18 ára stúlkur |
| Særós Eva Óskarsdóttir |
| Andrea Jónsdóttir |
| Jóna Þórarinsdóttir |
| Ninna Þórarinsdóttir |
|
| Liðsstjóri: Úlfar Jónsson |
|
| 16-18 ára drengir |
|
| A sveit |
| Ari Magnússon |
| Davíð Ómar Sigurbergsson |
| Emil Þór Ragnarsson |
| Jón Sævar Brynjólfsson |
| Rúnar Örn Grétarsson |
|
| Liðsstjóri: Birgir Leifur Hafþórsson |
|
| B-sveit |
| Daníel Hilmarsson |
| Daníel Jónsson |
| Gunnar Gunnarsson |
| Pétur Andri Ólafsson |
| Yngvi Sigurjónsson |
|
|
Liðsstjóri: Úlfar Jónsson
Áfram GKG!
|
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Mánudagur, 16. ágúst 2010 22:39 |
|
Úrslitin eru klár úr fjórða og síðasta móti svalamótaraðarinnar.
Vegna mistaka í skráningu þurfti að uppfæra listann!!
Hægt er að nálgast þau hér
Verðlaunahafar geta nálgast verðlaun sín í golfverslun GKG |
|
|
Frábær árangur GKG kvenna. |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Sunnudagur, 15. ágúst 2010 10:27 |
|
Kvennasveit GKG hefur náð frábærum árangri í sveitakeppni kvenna sem fram fer á Leirdalsvelli og endar í dag.
Stúlkurnar okkar gerðu sér lítið fyrir og unnu GKJ í leik um það hverjar myndu spila um 1- 2 sætið. GKG vann 3/2 og er því nú að ná besta árangri frá upphafi. GKG og GR leika til úrslita og hefst leikur þeirra um kl. 10:30
Úrslit leikja okkar kvenna í mótinu eru:
GO - GKG : GKG vann 4/1
GK - GKG : GKG vann 4/1
GKG - GMS: GKG vann 5/0
GKG - GKJ : GKG vann 3/2
Við óskum stelpunum okkar alls hins besta og hvetjum félaga til aðkoma og fylgjast með úrslitaleiknum sem er í gangi núna |
|
Lokun vegna sveitakeppni GSÍ |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 12:15 |
|
Ágætu félagar
Þessa helgina fer fram sveitakeppni GSÍ í 1. og 2. deild kvenna og verður leikið á báðum völlum GKG.
Við munum reyn að opna vellina fyrir almennan leik eins fljótt og auðið er og biðjum félaga um að fylgjast með á www.golf.is.
Við bendu félagsmönnum í GKG á að þeir geta spilað aðra velli geng 50% afslætti þessa helgi |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Þriðjudagur, 10. ágúst 2010 13:18 |
|
Keppnissveitir GKG í sveitakeppni GSÍ hafa verið skipaðar og taka eftirfarandi kylfingar þátt:
Karlar: Birgir Leifur Hafþórsson Alfreð Kristinsson Bjarki Freyr Júlíusson Björgvin Smári Kristjánsson Guðjón Henning Hilmarsson Kjartan Dór Kjartansson Sigmundur E. Másson Sigurður R. Ólafsson Liðsstjóri: Gunnar Páll Þórisson
Konur: Erna V. Ívarsdóttir Hansína Þorkelsdóttir Hrafnhildur Gunnarsdóttir Ingunn Einarsdóttir Ingunn Gunnarsdóttir Jónína Pálsdóttir María Guðnadóttir Guðfinna Halldórsdóttir Liðsstjóri: Haraldur Þórðarson
Báðar sveitir leika í efstu deild og spila karlarnir hjá Golfklúbbnum Keili en konurnar leika á heimavelli. Báðar sveitir hefja leik föstudaginn 13. ágúst. |
|
Sveitakeppni kvenna dagana 13.-15. ágúst |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Mánudagur, 09. ágúst 2010 17:05 |
|
Ágætu félagar
Næstu helgi fer fram sveitakeppni kvenna í fyrstu og annari deild og verður mótið haldið á bæði á Leirdalnum og Mýrinni.
Þannig verða báðir vellirnir lokaðir til kl 17:30 bæði föstudag og laugardag. Á sunnudaginn opna síðan báðir vellirnir eftir hádegi eða um 14:00
Kylfingar úr GKG geta spilað aðra velli með greiðslu 50% af vallargjaldi
Þeir sem að sjá sér fært að aðstoða við framkvæmd mótsins eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu klúbbsins.
Að lokum eru allir hvattir til þess að mæta á svæðið og horfa á fremstu kvennkylfinga landsins spila í einu skemmtilegasta móti ársins! |
|
Birgir Leifur Íslandsmeistari í holukeppni! |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Sunnudagur, 08. ágúst 2010 16:14 |
|
 Mynd: www.kylfingur.is Birgir Leifur Hafþórsson varð í dag íslandsmeistari í holukeppni. Birgir hefur staðið sig frábærlega undanfarnar vikur og unnið hvert mótið á fætur öðru. Í úrslitaleiknum bar Birgir sigur af Þórði Rafn Gissurarsyni úr GR. Leikurinn var æsispennandi og hafði Birgir eina holu í forskot á 18. teig. Þórður náði að jafna og því þurfti að útkljá leikinn í bráðabana. Á fyrstu holu í bráðabana fékk Birgir fugl og innsiglaði þar með sinn annan Íslandsmeistaratitil á einum mánuði.
Guðjón Henning Hilmarsson náði einnig frábærum árangri í mótinu. Eftir að hafa beðið lægri hlut fyrir Birgi í undanúrslitum, sýndi Guðjón góðan karakter með því að sigra Arnar Snæ Hákonarson í viðureigninni um þriðja sætið. Eftir að hafa verið undir stóran hluta af leiknum náði Guðjón að jafna á seinni hlutanum og hafði loks sigur á 18. holu - 1/0. Frábær árangur hjá Guðjóni sem hefur staðið sig mjög vel undanfarnar vikur.
Þrír kylfingar úr GKG komust í 8 manna úrslit, en auk þeirra Birgis og Guðjóns komst Björgvin Smári Kristjánsson einnig upp úr sínum riðli. En þar sló hann út meðal annars Kristján Þór Einarsson sem hafði titil að verja í mótinu.
Þessi úrslit gefa kylfingum vonandi sjálfstraust fyrir næstu helgi, en á föstudaginn hefst Íslandsmótið í sveitakeppni en leikið er á Hvaleyrarvelli, þar á GKG einmitt titil að verja.
Kvennasveitin spilar einnig á Íslandsmótinu í sveitakeppni næstu helgi en þær leika á heimavelli.
Það er því golfveisla í gangi næstu helgi hjá afrekskylfingum GKG og vonumst við eftir áframhaldi á góðu gengi kylfinganna okkar.
Að lokum vill GKG óska Birgi Leif og Guðjóni Henning innilega til hamingju með glæsilegan árangur í mótinu. Eru þeir sem og aðrir afrekskylfingar GKG í karla og kvennaflokki klúbbnum til sóma innanvallar sem og utan.
Áfram GKG! |
|
Góður árangur á Íslandsmóti unglinga í holukeppni |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Föstudagur, 06. ágúst 2010 09:48 |
|

Verðlaunahafar í Íslandsmóti unglinga: Aron Snær og Emil Þór 3. og 4. frá vinstri í efri röð. Mynd: Kylfingur.is
Íslandsmóti unglinga í holukeppni lauk í gær á Hólmsvelli í Leiru á Suðurnesjum. Árangur okkar kylfinga var mjög góður og hafnaði Aron Snær Júlíusson í 2. sæti eftir mikla baráttu við Birni Snæ Ingason GKj, en Birnir sigraði með eins holu mun. Emil Þór Ragnarsson sigraði afgerarandi sinn leik um þriðja sætið, en hann lagði Hallgrím Júlíusson GV 6/4. Gunnhildur Kristjánsdóttir þurfti að láta í minni pokann fyrir Söru Hinriksdóttur GK í keppninni um þriðja sætið í flokki 14 ára og yngri stúlkna. Hér má sjá úrslit í öllum flokkum, en nánari upplýsingar er að finna á www.golf.is
Stelpur, 14 ára og yngri: 1 Ragnhildur Kristinsdóttir GR 2/1 2 Þóra Kristín Ragnarsdóttir GK 3 Sara Margrét Hinriksdóttir GK 5/4 4 Gunnhildur Kristjánsdóttir GKG
Strákar 13-14 ára: 1 Birnir Snær Ingason GKJ 1/0 2 Aron Snær Júlíusson GKG 3 Birgir Björn Magnússon GK 8/6 4 Símon Leví Héðinsson GOS
Telpur, 15-16 ára: 1 Guðrún Pétursdóttir GR 2/1 2 Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK 3 Anna Sólveig Snorradóttir GK 2/0 4 Högna Kristbjörg Knútsdóttir GK
Drengir, 15-16 ára: 1 Bjarki Pétursson GB 3/2 2 Pétur Aron Sigurðsson GL 3 Emil Þór Ragnarsson GKG 6/4 4 Hallgrímur Júlíusson GV
Stúlkur, 17-18 ára: 1 Karen Guðnadóttir GS 3/1 2 Hildur Kristín Þorvarðardóttir GR 3 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR 8/6 4 Jódís Bóasdóttir GK
Piltar, 17-18 ára: 1 Rúnar Arnórsson GK 2/1 2 Alex Freyr Gunnarsson GR 3 Björn Öder Ólafsson GO 1/0 4 Magnús Björn Sigurðsson GR
|
|
Aron Snær keppir til úrslita |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Fimmtudagur, 05. ágúst 2010 12:45 |
|
Aron Snær Júlíusson afreksunglingur úr GKG keppir nú eftir hádegi til úrslita um Íslandsmeistaratitil í holukeppni 13 -14 ára.Aron Snær keppir á móti Birni Snæ úr GKJ í úrslitum.
Gunnhildur Kristjánsdóttir tapaði í morgun á 18 holunni á móti Þóru Kristínu í undanúrslitum í flokki 13-14 ára telpna. Gunnhildur keppir um þriðja sætið efir hádegi.
Emil Þór tapaði í morgun á móti Pétri Aroni Sigurðsyni og leikur einnig um þriðja sætið nú eftir hádegi. |
|
Emil, Aron og Gunnhildur áfram í undanúrslit |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Miðvikudagur, 04. ágúst 2010 22:08 |
|

Nú fer fram Íslandsmótið í holukeppni unglinga og er mótið haldið hjá Golfklúbbi Suðurnesja í Leirunni. Í gær var leikinn höggleikur og komust 16 efstu áfram í holukeppnina sem hófst í morgun. Af 23 keppendum GKG komust 14 áfram í holukeppnina. Eftir daginn í dag komust áfram í undanúrslit Emil Þór Ragnarsson í flokki 15-16 ára drengja; Aron Snær Júlíusson í flokki 14 ára og yngri stráka, en hann lagði Íslandsmeistarann í höggleik, Kristinn Reyr Sigurðsson í 8 manna úrslitum. Loks komst Gunnhildur Kristjánsdóttir í undanúrslit í flokki 14 ára og yngri stúlkna. Frábær árangur hjá þeim og óskum við þeim góðs gengis á morgun fimmtudag.
Nánari upplýsingar um úrslit er að finna á www.golf.is
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |