Áhersla stjórnarinnar lýtur að virku nefndar og félagsstarfi og eru í því sambandi unnar áætlanir nefnda fyrir hvert starfsár samhliða því að unnar eru langtímaáætlanir til 3 – 5 ára. Þessar áætlanir eru unnar af formönnum viðkomandi nefnda á hverju starfsári og hugað að framtíðinni við gerð þeirra. Nefndarformönnum er uppálagt að ígrunda vel starfsárið framundan svo og gera áætlanir til næstu ára. Framtíðaráætlanir skulu að nokkru leyti byggjast á fyrri áætlunum og ekki síður á hugmyndum nýrra nefndarmanna og ferskum hugmyndum sem þar kunna að myndast. Með þessu móti ættu nýjar hugmyndir að komast á framtíðaráætlun nefndarinnar og þar með klúbbsins og með því móti hljóta brautargengi eftir ítarlega meðferð í nefndum og síðan í meðferð stjórnar eftir góðan undirbúning innan sérhverrar nefndar.
Það er því mjög áríðandi að sérhverjum nefndarformanni sé uppálagt að vinna stöðugt í endurskoðun og framþróun stefnumála sinnar nefndar og fela samstarfsmönnum sínum í nefndinni að vinna að framtíðarsýn og uppbyggingu starfseminnar.
Smelltu á nafn viðkomandi nefndar í valmyndinni hér til vinstri til þess að fá nánari upplýsingar um starfsemi hennar.
|