|
Skrifað af: Guðmundur Árni Gunnarsson
|
|
Föstudagur, 16. júlí 2010 06:38 |
|
Í dag föstudaginn 16. júlí verður æfingasvæðið lokað frá kl 07:00 til 13:00.
Er þetta gert til að skipta út og setja nýja bolta á svæðið. |
|
Fíngerð tappagötun á Mýrinni |
|
Skrifað af: Guðmundur Árni Gunnarsson
|
|
Þriðjudagur, 13. júlí 2010 12:27 |
|
Á morgun miðvikudaginn 14. júlí hefst fíngerð tappagötun á mýrinni. Stefnt er að því að taka þrjár flatir á dag og verður verkinu lokið á föstudaginn.
Á meðan verið er að vinna við hverja flöt verður flaggið fært fyrir framan flötina.
Vallarstjóri. |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Mánudagur, 12. júlí 2010 14:09 |
|
Þriðja mót ársins á Miðvikudagsmótaröðinni fer fram næstkomandi miðvikudag 14. júlí
Fyrirkomulagið er það sama og áður. Kylfingar skrá sig venjulega á rástíma, koma inn í golfverslun og greiða þar mótsgjald 1.500 krónur og fá útprentað skorkort til að skrá inn skorið sem á að skila inn eftir hringinn. Kylfingar hafa möguleika á því að skila inn skorkortinu til kl. 22 á fimmtudaginn eftir mótið. Leikin er punktakeppni í karla og kvennaflokki og gilda 4 bestu hringirnir af 6 í sumar. Eins og áður verða glæsileg verðlaun fyrir heildapunktakeppnina eins sem að veitt verða verðlaun fyrir flesta punkta í einstökum mótum.
Stöðuna eftir tvo hringi má nálgast hér |
|
|
Meistaramót GKG - Lokahóf |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Föstudagur, 09. júlí 2010 20:49 |
|
Lokahóf Meistaramótsins verður haldið laugardagskvöldið 10. júlí.
Í lokahófinu verða veitt verðlaun fyrir besta árangur kylfinga í hverjum flokki, púttkeppni með glæsilegum vinningum, grillveisla að hætti Sigga matreiðslumeistara og skemmtiatriði í boði skemmtanastjóra GKG.
Mæting: 19:30
Verð: 2500 krónur
Innifalið: Grillveisla, fordrykkur og þátttökuréttur í púttkeppninni.
Hægt verður að nálgast miða í golfverslun allan laugardaginn.
Ekki missa af þessari frábæru skemmtun! |
|
Meistaramót GKG - Lokadagur |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Föstudagur, 09. júlí 2010 19:19 |
|
Nú fer að líða að lokum meistaramótsins og einungis einn dagur eftir fyrir síðustu flokkana.
3. flokkur karla og kvenna ljúka leik í dag(föstudag).
Rástímar fyrir lokadag Meistaramóts GKG eru komnir inn á www.golf.is undir mótaskránni.
Munið að velja hring 7 |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Miðvikudagur, 07. júlí 2010 23:47 |
|
Rástímar fyrir dag 5 eru komnir á www.golf.is undir mótaskránni
Munið að velja hring 5! |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Þriðjudagur, 06. júlí 2010 15:52 |
|
Rástímar fyrir Meistara-, 1. og 2. flokk karla og kvenna eru komnir undir Meistaramótið á www.golf.is
Munið að velja hring 4!!!
Rástímar fyrir 3. flokk karla og kvenna koma inn þegar að 3. flokkur karla hefur lokið leik. Það verður um 19:00. |
|
Rástímar fyrir dag 3 komnir á netið |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Mánudagur, 05. júlí 2010 21:35 |
|
Rástímar fyrir dag 3 í Meistaramótinu eru komnir á netið . Hægt er að skoða þá á www.golf.is undir mótaskrá. Athugið að velja þar réttan dag (hring 3). Rástíma fyrir 12 ár og yngri er að finna undir sér móti á www.golf.is
Rástímarnir hanga einnig uppi í skálnum. |
|
Breyting á áætluðum rástímum ATH |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Mánudagur, 05. júlí 2010 17:13 |
|
Vegna gífurlegrar aukningar á þátttöku í forgjafarlægri flokkum meistaramótsins hafa fyrstu rástímum verið flýtt til kl 06:00 frá og með miðvikudeginum 7. júlí.
Uppfærðir áætlaðir rástímar eru komnir inn á netið og hægt er að sjá þá hér
Þessir rástímar eru útreiknaðir miðað við fjölda í hverjum flokki fyrir sig og því mjög áreiðanlegir. Ef einhver breyting verður á þátttöku þá verður nýr listi settur upp seinnipart þriðjudags. |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Sunnudagur, 04. júlí 2010 20:57 |
|
Meistaramót GKG fór af stað í morgun í ágætis veðri. Rástímar fyrir annan dag mótsins eru komnir inn á www.golf.is undir rástímar - veljið hring 2.
Áætlaða rástíma fyrir næstu daga er hægt að nálgast hér |
|
Rástímar fyrir sunnudag komnir á netið |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Föstudagur, 02. júlí 2010 22:28 |
|
Rástímar fyrir fyrsta dag meistarmóts GKG 2010 eru komnir á netið . Hægt er að skoða þá á www.golf.is en passa þarf að velja rétta dagsetningu.
Í flokki 12 ára og yngri er sér mót í mótaskránni þar sem einnig er að finna rástíma fyrir fyrsta daginn.
Rástímar hanga líka uppi í golfskálanum
Mótanefnd |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |