Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, Vífilstaðavegi, 210, Garðabæ
Sími: 565-7373 - Veffang: www.gkg.is - Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. - Kt.: 650394-2089.


Framkvæmdastjóri: Ólafur E. Ólafsson

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar var stofnaður 24. mars 1994.

Svæði félagsins er í landi Garðabæjar annarsvegar og í Landi Kópavogs hinsvegar eins og nafnið ber með sér. Vallarstæðið er í Vetrarmýri í landi Vífilsstaða í Garðabæ og í Leirdal ofan við Salahverfi í Kópavogi.

Fram til ársins 1996 voru einungis 9 holur til afnota fyrir félagsmenn en árið 1996 voru teknar í notkun 9 holur til viðbótar og var völlurinn þá orðinn 18 holur. Enn frekari endurbætur voru gerðar á vellinum 2002 og nú síðast hafa 9 holur til viðbótar verið byggðar í Leirdal í landi Kópavogs og áætlað er að vorið 2007 verði 27 golfbrautir á svæði klúbbsins. Til stendur að taka æfingasvæði klúbbsins til gagngerrar endurnýjunar. Æfingasvæðið er stórt og öll önnur aðstaða til golfiðkunar á svæði klúbbsins með því sem besta sem gerist á landinu.

Um 1,500 félagar eru nú í GKG og mikið af þeim fjölda eru börn og unglingar. GKG telur flest ungmenni yngri en 16 ára af öllum golfklúbbum á landinu og er það mikið ánægjuefni að hafa úr svo miklum efnivið að moða til framtíðar.

Fjárhagsár golfhreyfingarinnar er frá 1. nóvember til 31. október og er aðalfundur klúbbsins haldinn í lok nóvember ár hvert þar sem m.a. stjórn klúbbsins er kosin. Frá upphafi hefur verið öflugt félagsstarf og ávallt hefur góður félagsandi einkennt starfssemi GKG. Haldnir eru félagsfundir nokkrum sinnum á ári auk þess sem í klúbbnum eru starfandi ýmsar nefndir og klúbbar, t.d. unglinganefnd, afreksnefnd, hjónanefnd, öldunganefnd, kvennanefnd og ferðanefnd. Einnig er rekið öflugt nýliðastarf þar sem nýliðar sækja bæði bókleg og verkleg námskeið.Getraunaklúbbur er einnig starfandi innan klúbbsins og fer starfsemi hans vaxandi á hverju ári. Getraunaklúbburinn er starfræktur er nær eingöngu á veturna.

GKG hefur mikinn metnað til framtíðar og hefur í því sambandi gert metnaðarfulla áætlun til næstu ára. Til grundvallar þessari framtíðarstefnu GKG eru metnaðarfullar áætlanir nefnda til næstu ára svo og vinna stjórnar á 3 vinnufundum haustið 2004 þar sem lögð var fyrir og rædd framtíðaráform og áherslur stjórnarinnar. Segja má að markmið klúbbsins hafi staðist tímans tönn og að áformað sé að vinna að frekari uppbyggingu. Varðandi leiðir og fyrirliggjandi verkefni, þá hefur mörgum þeirra verið skilað í örugga höfn og önnur verkefni komið í staðinn. Því hefur aðalstjórn GKG ráðist í endurskoðun þess hluta með tilliti til nýrra aðstæðna á nýrri öld. Það er á áætlun stjórnar að þessi vinna glatist ekki með tímanum og mun framtíðaráætlun klúbbsins því vera til sífelldrar endurskoðunar. Áætlað er að stefnumótun klúbbsins sé til sífelldrar umfjöllunar bæði á stjórnarfundum svo og á almennum félagsfundum. Með þessu móti sér stjórn klúbbsins fyrir sér að hinn almenni félagsmaður hafi mikið um framtíðarsýn klúbbsins að segja og geti með einföldum hætti haft þar áhrif á og lagt sitt að mörkum til stefnumótunar klúbbsins til framtíðar.

Tilgangur GKG og markmið eru skv lögum hans að glæða og viðhalda áhuga á golfíþróttinni. Auk þess ber klúbbnum að veita íbúum Garðabæjar og Kópavogs á öllum aldri þjónustu og aðstöðu til íþróttaiðkunar og tómstundastarfs. Sérstök áhersla er lögð á íþrótta- og uppeldisstarf með börnum og unglingum til að stuðla að heilbrigðu líferni og félagsþroska.

Það er framtíðarsýn stjórnenda GKG að klúbburinn standi ávallt traustum fótum hvað snertir fjölda klúbbfélaga, árangur í keppnisíþróttum, aðstöðu til æfinga og keppni, fjárhagslega stöðu og annað það sem leggur grunn að umfangsmiklu og gifturíku starfi. GKG starfi þannig á fullbyggðu félagssvæði sem anni eftirspurn eftir aðstöðu til golfiðkunar og útiveru, unglingastarf sé öflugt, árangur meistaraflokka í fremstu röð, reglubundin skráning sögu klúbbsins innbyggð í dagleg stjórnunarstörf og klúbburinn í sviðsljósinu sem einn sterkasti golfklúbbur landsins á afrekssviðinu.

GKG sé klúbbur allra aldurshópa, skemmtilegur, menningarlegur, félagslegur og gefandi fyrir félagsmenn, með virkt stjórnkerfi sem misbýður ekki vinnuskyldu sjálfboðaliða í stjórnunarstörfum heldur veitir þeim eins og öðrum GKG félögum ánægju af starfi sínu innan klúbbsins. Það er framtíðarsýn GKG að klúbburinn hafi glæsta og áferðarfallega ímynd og að saga hans sé hverju sinni saga sameiginlegra sigra í leik og starfi þeirra félagsmanna sem fylkja sér saman undir merkjum GKG.

Framkvæmdastjóri GKG sér um allan rekstur klúbbsins og gefur upplýsingar um starfssemina í síma 565 7373 eða með tölvupósti: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Joomla Templates by Joomlashack