|
Góður árangur á Íslandsmóti unglinga í holukeppni |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Föstudagur, 06. ágúst 2010 09:48 |
|

Verðlaunahafar í Íslandsmóti unglinga: Aron Snær og Emil Þór 3. og 4. frá vinstri í efri röð. Mynd: Kylfingur.is
Íslandsmóti unglinga í holukeppni lauk í gær á Hólmsvelli í Leiru á Suðurnesjum. Árangur okkar kylfinga var mjög góður og hafnaði Aron Snær Júlíusson í 2. sæti eftir mikla baráttu við Birni Snæ Ingason GKj, en Birnir sigraði með eins holu mun. Emil Þór Ragnarsson sigraði afgerarandi sinn leik um þriðja sætið, en hann lagði Hallgrím Júlíusson GV 6/4. Gunnhildur Kristjánsdóttir þurfti að láta í minni pokann fyrir Söru Hinriksdóttur GK í keppninni um þriðja sætið í flokki 14 ára og yngri stúlkna. Hér má sjá úrslit í öllum flokkum, en nánari upplýsingar er að finna á www.golf.is
Stelpur, 14 ára og yngri: 1 Ragnhildur Kristinsdóttir GR 2/1 2 Þóra Kristín Ragnarsdóttir GK 3 Sara Margrét Hinriksdóttir GK 5/4 4 Gunnhildur Kristjánsdóttir GKG
Strákar 13-14 ára: 1 Birnir Snær Ingason GKJ 1/0 2 Aron Snær Júlíusson GKG 3 Birgir Björn Magnússon GK 8/6 4 Símon Leví Héðinsson GOS
Telpur, 15-16 ára: 1 Guðrún Pétursdóttir GR 2/1 2 Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK 3 Anna Sólveig Snorradóttir GK 2/0 4 Högna Kristbjörg Knútsdóttir GK
Drengir, 15-16 ára: 1 Bjarki Pétursson GB 3/2 2 Pétur Aron Sigurðsson GL 3 Emil Þór Ragnarsson GKG 6/4 4 Hallgrímur Júlíusson GV
Stúlkur, 17-18 ára: 1 Karen Guðnadóttir GS 3/1 2 Hildur Kristín Þorvarðardóttir GR 3 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR 8/6 4 Jódís Bóasdóttir GK
Piltar, 17-18 ára: 1 Rúnar Arnórsson GK 2/1 2 Alex Freyr Gunnarsson GR 3 Björn Öder Ólafsson GO 1/0 4 Magnús Björn Sigurðsson GR
|
|
Aron Snær keppir til úrslita |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Fimmtudagur, 05. ágúst 2010 12:45 |
|
Aron Snær Júlíusson afreksunglingur úr GKG keppir nú eftir hádegi til úrslita um Íslandsmeistaratitil í holukeppni 13 -14 ára.Aron Snær keppir á móti Birni Snæ úr GKJ í úrslitum.
Gunnhildur Kristjánsdóttir tapaði í morgun á 18 holunni á móti Þóru Kristínu í undanúrslitum í flokki 13-14 ára telpna. Gunnhildur keppir um þriðja sætið efir hádegi.
Emil Þór tapaði í morgun á móti Pétri Aroni Sigurðsyni og leikur einnig um þriðja sætið nú eftir hádegi. |
|
Emil, Aron og Gunnhildur áfram í undanúrslit |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Miðvikudagur, 04. ágúst 2010 22:08 |
|

Nú fer fram Íslandsmótið í holukeppni unglinga og er mótið haldið hjá Golfklúbbi Suðurnesja í Leirunni. Í gær var leikinn höggleikur og komust 16 efstu áfram í holukeppnina sem hófst í morgun. Af 23 keppendum GKG komust 14 áfram í holukeppnina. Eftir daginn í dag komust áfram í undanúrslit Emil Þór Ragnarsson í flokki 15-16 ára drengja; Aron Snær Júlíusson í flokki 14 ára og yngri stráka, en hann lagði Íslandsmeistarann í höggleik, Kristinn Reyr Sigurðsson í 8 manna úrslitum. Loks komst Gunnhildur Kristjánsdóttir í undanúrslit í flokki 14 ára og yngri stúlkna. Frábær árangur hjá þeim og óskum við þeim góðs gengis á morgun fimmtudag.
Nánari upplýsingar um úrslit er að finna á www.golf.is
|
|
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Þriðjudagur, 03. ágúst 2010 14:47 |
|
Fimmta mót ársins á Miðvikudagsmótaröðinni fer fram næstkomandi miðvikudag 3. ágúst
Fyrirkomulagið er það sama og áður. Kylfingar skrá sig venjulega á rástíma, koma inn í golfverslun og greiða þar mótsgjald 1.500 krónur og fá útprentað skorkort til að skrá inn skorið sem á að skila inn eftir hringinn. Kylfingar hafa möguleika á því að skila inn skorkortinu til kl. 22 á fimmtudaginn eftir mótið. Leikin er punktakeppni í karla og kvennaflokki og gilda 4 bestu hringirnir af 6 í sumar. Eins og áður verða glæsileg verðlaun fyrir heildapunktakeppnina eins sem að veitt verða verðlaun fyrir flesta punkta í einstökum mótum.
Stöðuna eftir fjögur mót má nálgast hér |
|
Opna CARLSBERG mótið - ÚRSLIT |
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Mánudagur, 02. ágúst 2010 20:16 |
|
Carlsberg Open – Úrslit
Leirdalsvelli GKG 2. ágúst
Punktakeppni
1. Sæti – Gústaf Alfreðsson GR 40 punktar
2. Sæti – Gunnar Freyr Einarsson GKG 39 punktar
3. Sæti – Magnús Magnússon GKG 39 punktar
4. Sæti – Ármann Markússon GK 37 punktar
Höggleikur
1. Sæti – Alfreð Brynjar Kristinsson 72 högg
.
Nándarverðlaun á öllum par 3 holum:
· 2. braut – Gústaf Alfreðsson GR 968 sm · 4. braut - Jóel Kristinsson GKG 121 sm · 9. braut – Jóel Kristinsson GKG 1 sm · 11. Braut – Svanur A Ingimundar GR 8 sm · 13. Braut – Árni Þ. Árnason GKG 230 sm · 17. Braut – Ólafur Ingólfsson GKG 48 sm |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Föstudagur, 30. júlí 2010 14:18 |
|
Fjórða mótið í miðvikudagsmótaröðinni fór fram miðvikudaginn 28. júlí
Stöðuna eftir fjögur mót má nálgast hér
Einnig fór þriðja mótið í Svalamótaröðinni fram í gær 29. júlí á mýrinni
Úrslitin úr því móti má nálgast hér og geta vinningshafar nálgast verðlaunin sín í Golfverslun GKG eftir verslunarmannahelgi.
Að lokum var svo einnig keppt á unglingamótaröðinni þriðjudaginn 27. júlí en þau úrslit má nálgast inn á www.golf.is |
|
Skrifað af: Guðrún Helgdóttir
|
|
Föstudagur, 30. júlí 2010 08:32 |
Öldungaferð á Hellu 11. ágúst. Miðvikudaginn 11. ágúst stendur okkur til boða að heimsækja Golfkúbbinn á Hellu og spila þar 18 holur ef næg þátttaka fæst. Þetta yrði punktakeppni og verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hvorum flokki. Farið verður frá skálanum kl. 9.30 og ræst út kl. 11.30 - 12.40. Reiknum með að rúta og vallargjald geti orðið um kr. 4.000.- en fer eftir því hvað við verðum mörg. Sýnum samstöðu og fyllum rútuna. Skráningarblað í skála. |
|
Guðjón Henning lék á 65 höggum og sigraði |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Föstudagur, 30. júlí 2010 08:27 |
|
Nýverið lauk Bushnell mótaröðinni, en það er keppni meistaraflokkskylfinga karla og kvenna í GKG, GK og GO. Keppnin er haldin yfir sumarið og var keppnisfyrirkomulag þannig að leikinn var einn hringur hjá fyrrgreindum klúbbum, og giltu tvö bestu skorin í heildarkeppni þar sem verðlaunin fyrir besta árangur karla og kvenna voru Bushnell Tour V2 pinseeker fjarlægðarkíkir, en VOS hf. var styrktaraðili mótaraðarinnar. Markmiðið með mótaröðinni var að veita kylfingunum möguleika á að keppa oftar á hvítum teigum, sem undirbúning og æfingu fyrir Eimskipsmótaröðina.
Úrslit urðu þannig að í karlaflokki sigraði Guðjón Henning Hilmarsson, GKG, eftir frábæran hring á Keilisvellinum í gær, en hann lék á 65 höggum! Hann komst því uppfyrir Axel Bóasson, GK, sem leiddi mótið eftir tvo hringi. Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG, varð í þriðja sæti.
Í kvennaflokki sigraði Jódís Bóasdóttir, GK, en hún varð tveimur höggum á undan Ingunni Gunnarsdóttur, GKG. Nýkrýndur Íslandsmeistari, Tinna Jóhannsdóttir, GK, varð í þriðja sæti.
Hér má sjá úrslit í mótaröðinni, eins og fyrr segir töldu tveir hringir af þremur.
Karlaflokkur GKG GO GK
1. Guðjón Henning Hilmarsson GKG 71 77 65 136
2. Axel Bóasson GK 67 73 70 137
3. Alfreð Brynjar Kristinsson GKG 78 68 70 138
Kvennaflokkur
1. Jódís Bóasdóttir GK 75 79 74 149
2. Ingunn Gunnarsdóttir GKG 87 77 74 151
3. Tinna Jóhannsdóttir GK 83 77 79 156
|
|
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson
|
|
Fimmtudagur, 29. júlí 2010 12:40 |
|
Þriðjudaginn 10. ágúst n.k. verður óvissuferð GKG-kvenna. Skráning fer fram á töflu í golfskálanum eða með því að hringja í rástímaskráningu 897-7773 eða 565-7373 og velja 1. Mæting er kl. 12:45 á Vífilsstaðavöll við golfskálann. Lagt verður af stað kl. 13:00. Gjaldið er kr. 3.000 og í gjaldinu eru innifalin vallargjöld, rútuferð og súpa og brauð. Þægilegast er að allar greiði með peningum í rútunni en einnig er unnt að greiða á staðnum með korti.
Leiknar verða 18 holur og verða veitt verðlaun fyrir flesta punkta. Nándarverðlaun verða á fjórum par 3 holum. Boltinn verður að vera inn á flöt. Veitt verða verðlaun fyrir lengsta högg á og verður boltinn að vera á braut. Verðlaunaafhending í mótslok.
Golfkveðjur Kvennanefnd GKG. |
|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Þriðjudagur, 27. júlí 2010 18:34 |
|
Fjórða mót ársins á Miðvikudagsmótaröðinni fer fram næstkomandi miðvikudag 28. júlí
Fyrirkomulagið er það sama og áður. Kylfingar skrá sig venjulega á rástíma, koma inn í golfverslun og greiða þar mótsgjald 1.500 krónur og fá útprentað skorkort til að skrá inn skorið sem á að skila inn eftir hringinn. Kylfingar hafa möguleika á því að skila inn skorkortinu til kl. 22 á fimmtudaginn eftir mótið. Leikin er punktakeppni í karla og kvennaflokki og gilda 4 bestu hringirnir af 6 í sumar. Eins og áður verða glæsileg verðlaun fyrir heildapunktakeppnina eins sem að veitt verða verðlaun fyrir flesta punkta í einstökum mótum. |
|
Birgir Leifur Íslandsmeistari! |
|
Skrifað af: Úlfar Jónsson
|
|
Mánudagur, 26. júlí 2010 09:33 |
|

Mynd: Kylfingur.is
Birgir Leifur Hafþórsson tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í fjórða sinn í gær á Kiðjabergsvelli í Grímsnesi. Birgir Leifur lék frábært golf alla keppnisdagana og endaði mótið samtals á parinu, þremur höggum á undan næsta manni, Kristjáni Þór Einarssyni úr Kili Mosfellsbæ. Sigmundur Einar Másson varð í þriðja sæti, fimm höggum á eftir Birgi Leifi. Árangur GKG manna er einstaklega glæsilegur í þessu móti, og voru fjórir kylfingar meðal tíu efstu, en Alfreð Kristinsson endaði í 7. sæti og Guðjón Henning Hilmarsson í 9. sæti.
Í kvennaflokki varð Tinna Jóhannsdóttir hlutskörpust og landaði Íslandsmeistaratitlinum í fyrsta sinn. Hún lauk keppni á 22 yfir, tveimur höggum á undan Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur. Í þriðja sæti var Signý Arnórsdóttir. Ingunn Gunnarsdóttir náði besta árangri GKG kvenna og hafnaði í 10. sæti.
Eftirfarandi eru úrslit efstu kylfinga í karla- og kvennaflokki:
|
| Sæti |
Nafn |
Félag |
Högg |
| 1 |
Birgir Leifur Hafþórsson |
GKG |
284 |
| 2 |
Kristján Þór Einarsson |
GKJ |
287 |
| 3 |
Sigmundur Einar Másson |
GKG |
289 |
| 4 |
Þórður Rafn Gissurarson |
GR |
290 |
| 5 |
Hlynur Geir Hjartarson |
GK |
292 |
| 6 |
Heiðar Davíð Bragason |
GHD |
293 |
| 7 |
Alfreð Brynjar Kristinsson |
GKG |
295 |
| 8 |
Stefán Már Stefánsson |
GR |
296 |
| T9 |
Guðjón Henning Hilmarsson |
GKG |
297 |
| T9 |
Axel Bóasson |
GK |
297 |
| T9 |
Guðmundur Ágúst Kristjánsson |
GR |
297 |
| T9 |
Örvar Samúelsson |
GA |
297 |
|
|
|
|
|
|
|
|
| Sæti |
Nafn |
Félag |
Högg |
| 1 |
Tinna Jóhannsdóttir |
GK |
306 |
| 2 |
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir |
GR |
308 |
| 3 |
Signý Arnórsdóttir |
GK |
309 |
| 4 |
Nína Björk Geirsdóttir |
GKJ |
310 |
| 5 |
Valdís Þóra Jónsdóttir |
GL |
311 |
| 6 |
Berglind Björnsdóttir |
GR |
319 |
| 7 |
Þórdís Geirsdóttir |
GK |
327 |
| 8 |
Helena Árnadóttir |
GR |
329 |
| 9 |
Hildur Kristín Þorvarðardóttir |
GR |
331 |
| T10 |
Eygló Myrra Óskarsdóttir |
GO |
333 |
| T10 |
Karlotta Einarsdóttir |
NK |
333 |
| T10 |
Ingunn Gunnarsdóttir |
GKG |
333 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |