|
Unglingamótaröð GKG er nú haldin í sjötta sinn. Þetta er flokkaskipt punktamót með fullri forgjöf og er hugsuð jafnt fyrir reyndari kylfinga sem og óreyndari. Þó er mælst til þess að þau sem taki þátt séu byrjuð að lækka forgjöfina. Skipt er í flokka annars vegar eftir kyni og hins vegar aldri þ.e. 17-18 ára, 15-16 ára, 13-14 ára og 12 ára og yngri.
Fjöldi glæsilegra vinninga er í boði en veitt verða verðlaun fyrir efstu sætin í hverjum flokki (3 af 5 bestu mótum telja) auk þess sem veitt verða verðlaun fyrir flesta punkta í hverju móti.
Skráning fer fram hér á netinu og er gerð krafa um að skráningu sé lokið fyrir miðnætti á sunnudagskvöldi í mótsviku en spilað er á þriðjudögum. Ræst verður út á eftirtöldum tímum: 08:00-09:00; 13:00-15:00 og 17:00-17:30. Mótsgjald er kr. 500.- á mann fyrir hvert mót og þarf að staðgreiða það hjá ræsi áður en farið er á teig. Á haustmánuðum, að loknu síðasta mótinu, verður svo vegleg lokahátið ásamt verðlaunaafhendingu.
Keppnisdagar:
16. júní - 29.júní - 27.júlí - 10.ágúst - 17.ágúst
|