|
Skrifað af: Valgeir Tómasson
|
|
Mánudagur, 12. júlí 2010 14:09 |
|
Þriðja mót ársins á Miðvikudagsmótaröðinni fer fram næstkomandi miðvikudag 14. júlí
Fyrirkomulagið er það sama og áður. Kylfingar skrá sig venjulega á rástíma, koma inn í golfverslun og greiða þar mótsgjald 1.500 krónur og fá útprentað skorkort til að skrá inn skorið sem á að skila inn eftir hringinn. Kylfingar hafa möguleika á því að skila inn skorkortinu til kl. 22 á fimmtudaginn eftir mótið. Leikin er punktakeppni í karla og kvennaflokki og gilda 4 bestu hringirnir af 6 í sumar. Eins og áður verða glæsileg verðlaun fyrir heildapunktakeppnina eins sem að veitt verða verðlaun fyrir flesta punkta í einstökum mótum.
Stöðuna eftir tvo hringi má nálgast hér
|