Fréttir af unglingastarfi
Niðjamót GKG 2010
Skrifað af: Jón Hörðdal   
Sunnudagur, 27. júní 2010 10:46

Hið árlega niðjamót GKG fer fram laugardaginn 3.júlí. Þetta er stærsti viðburðurinn í fjölbreyttu fjáröflunarstarfi afreksunglinga klúbbsins og hvetjum við því mömmur og pabba, ömmur og afa til þess að mæta með niðjum sínum og eiga góða stund saman við skemmtilegan leik og spennandi keppni.  Að þessu sinni er motið opið öllum klúbbum og hvetjum við því alla til þess að fá með sér vini og félaga úr öðrum klúbbum (gildir þó áfram reglan um að annar keppendana í hverju liði sé niðji hins, þ.e. barn, barnabarn eða tengdabarn).

Smellið hér til þess að skrá í mótið á golf.is og á "Nánar" hér að neðan til þess að sjá auglýsingu um mótið með nánari upplýsingum.

Nánar...
 
Æfingatafla sumar 2010 og dagatal
Skrifað af: Úlfar Jónsson   
Miðvikudagur, 09. júní 2010 23:05

Æfingatafla og hópaskipan fyrir sumaræfingarnar 2010 er nú tilbúin og er hægt að smella hér til að skoða nánar. Einnig er hægt að skoða dagatal barna- og unglingastarfsins með helstu viðburðum hér.

2. júlí var haldinn foreldrafundur og má sjá helstu punktana sem voru kynntir hér fyrir neðan:

Hér eru nokkrir punktar um það helsta sem var farið yfir.

  • Gunnar Jónsson (form. unglinganefndar) opnaði fundinn og sagði m.a. frá því að unglinganefnd og afreksnefnd hefði verið sameinuð í íþróttanefnd m.a. til að samþátta barna- og unglingastarfið með afreksstarfinu.
  • Gunnar Páll (formaður afreksnefndar) kynnti Gæðahandbók GKG sem var gefin út í vor. Eintak var sent á þennan netfangalista í seinustu viku. Úlfar fór yfir þann hluta handbókarinnar er snýr að þjálfun og skipulagi. Hvet ykkur til að skoða bókina vel og koma með athugasemdir, þetta er 1. útgáfa og hún verður uppfærð árlega.

Rætt var um foreldrastarfið og leiðir til að efla það. Golfið er nokkuð frábrugðið hópíþróttunum en við viljum gjarnan efla félagslega hlutann meðal barnanna og einnig meðal foreldra. Við auglýsum því eftir áhugasömum til að koma í foreldraráð og vísa ég í Gæðahandbókina á bls. 7 varðandi markmið Foreldrastarfs.

  • Dagatal með helstu viðburðum sumarsins.
  • Þjálfarar sumarsins kynntir. Gestur Gunnarsson, Guðjón Henning Hilmarsson, Haukur Már Ólafsson, Sigmundur Einar Másson, Birgir Leifur Hafþórsson, Haraldur Þórðarson og Derrick Moore. Afreksstúlkur GKG munu koma að spilæfingum stúlkna til að ýta enn frekar undir áhuga þeirra. Undirritaður mun ekki sinna þjálfun beint í sumar en fylgist með og aðstoðar með öðrum hætti.
  • Varðandi keppnir þá eru mismunandi leiðir sem henta vonandi öllum. Sjá ýmsar leiðir hér fyrir neðan.

Keppnir/leikir á æfingum fyrir þau sem eru að byrja og/eða treysta sér ekki í mót.

Innanfélagsmót GKG 

Svalamótaröðin fyrir 12 ára og yngri, haldið í Mýrinni. Smelltu hér til að sjá uppl.

Unglingamótaröð GKG. Haldið á Leirdalsvelli. Smelltu hér til að sjá uppl.

Meistaramót GKG. Haldið á Leirdalsvelli. Smelltu hér til að sjá uppl. Mmótið er fyrir þau sem hafa lækkað forgjöf sína.

Opin unglingamót

US Kids mótaröðin fyrir 12 ára og yngri. Sjá hér lýsingu á þessari skemmtilegu mótaröð.

Áskorendamótaröð GSÍ. Eins dags mót fyrir þau sem eru byrjuð að lækka forgjöf og vilja auka keppnisreynslu sína. Keppt í flokkum 14 ára og yngri, 15-16 ára og 17-18 ára. Stökkpallur yfir í Arionbankamótaröðina.

Arionbanka mótaröð GSÍ. Tveggja daga mót fyrir forgjafarlægri kylfinga. Keppt í sömu flokkum og í Áskorendamótaröðinni.

Sjá dagssetningar í dagatalinu.

Ath. að aldur miðast við fæðingarár.

Endilega hafið samband ef ykkur vantar einhverjar upplýsingar. Best er að ná í mig frá kl. 8:30-13.

Bestu kveðjur,

Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG
PGA golfkennari
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
S: 862 9204

 

 

 
Æfingatafla maí - 10. júní 2010
Skrifað af: Úlfar Jónsson   
Miðvikudagur, 05. maí 2010 09:35

Gleðilegt sumar!

Nú þegar grasið er tekið að grænka þá færum við æfingarnar yfir á golfvöllinn okkar. Þess má þó geta að stutta spils æfingar verða áfram í Kórnum til 17. maí, en eftir það þá verða allar æfingar í GKG. Æfingatöfluna og hópaskipan má sjá með því að smella hér. Taflan tók gildi 3. maí og gildir þar til skólum lýkur 10. júní. Í kjölfarið taka við sumaræfingar og þarf að skrá sérstaklega á sumaræfingarnar sem hefjast 13. júní, en skráning hefst um miðjan maí og mun ég láta vita af því þegar opnað verður fyrir skráninguna.

 

Ekki er þörf á að skrá sérstaklega á æfingarnar frá 3. maí-10. júní, þetta er framhald af vetraræfingunum, og vonumst við til að sjá alla mæta vel á þessar æfingar og vera dugleg að spila sjálf.

 

Bestu kveðjur,

Úlfar

 

 

 

Úlfar Jónsson

Íþróttastjóri GKG

PGA golfkennari

www.gkg.is

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

S: 862 9204

 
Annað mótið á Svalamótaröðinni - Skráningu lýkur á sunnudaginn
Skrifað af: Jón Hörðdal   
Fimmtudagur, 09. júlí 2009 09:31
svaliNæstkomandi þriðjudag verður annað mótið af 4 í sumar á Svalamótaröð GKG.  Við minnum á að þetta er mót fyrir alla 12 ára og yngri krakka í GKG sem eru að byrja í golfi og hafa ekki ennþá lækkað forgjöf sína.  Mjög góð þátttaka var á síðasta móti og vonumst við til þess að sjá enn fleiri á þriðjudaginn en til þess að taka þátt verður að skrá sig hér á síðunni fyrir lok sunnudagsins 12.júlí.  Allar nánari upplýsingar er hægt að sjá með því að smella hér.
 
Úrslit úr annari umferð Svalamótaraðarinnar
Skrifað af: Alexander Jensen Hjálmarsson   
Fimmtudagur, 16. júlí 2009 13:37
Komin eru inn úrslitin úr annari umferð Svalamótaraðarinnar, sjá hér.
 
Fyrsta mótið á Svalamótaröð GKG á þriðjudaginn
Skrifað af: Jón Hörðdal   
Sunnudagur, 28. júní 2009 17:17
Fyrsta mótið af 4 í sumar á Svalamótaröð GKG fer fram á Mýrinni á þriðjudaginn (30.júní).  Þetta er mót fyrir 12 ára og yngri krakka sem eru að byrja í golfi og hafa ekki ennþá lækkað forgjöf sína.  Allar nánari upplýsingar er hægt að sjá með því að smella hér.  Við hvetjum sérstaklega alla krakkana sem eru að æfa hjá okkur og hafa tök á að taka þátt í þessari skemmtilegu mótaröð.
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
Joomla Templates by Joomlashack