|
1. Þjónustusvæði Það er markmið GKG að starfa að íþrótta-, tómstunda- og félagsmálum í Garðabæ og Kópavogi á þann hátt að sem flestir bæjarbúa geti með einhverjum hætti notið góðs af.
2. Þjónusta Það er markmið GKG að veita félagsmönnum sínum og bæjarbúum fyrsta flokks þjónustu á sviði golfíþróttarinnar og útiveru. Í þeim efnum verði fjölbreytni höfð að leiðarljósi, jafnt í keppnis- sem áhugamennsku. Það er jafnframt markmið GKG að innan vébanda klúbbsins ríki andrúmsloft víðtækrar samheldni og leikgleði þannig að félagsmenn njóti þess að vera saman, starfa saman, æfa saman og keppa undir merkjum klúbbsins. GKG mun beita sér fyrir því að innan hans geti börn og unglingar starfað óháð efnahag.
3. Aðstaða. Það er markmið GKG að tryggja sem flestum aðstöðu til hollrar hreyfingar með leik eða æfingum og keppni á vegum klúbbsins. Félagssvæðið sé því jafnt opið félagsmönnum til leiks, æfinga og keppni, sem standa öllum opið til iðkunar á golfíþróttinni og almennrar útiveru. Klúbburinn mun kappkosta að mæta eftirspurn í þessum efnum svo sem frekast er unnt.
4. Gæði. Það er markmið GKG að sinna hverju því verkefni sem klúbburinn tekst á hendur af vandvirkni og að sú þjónusta sem félagsmenn eða aðrir greiða fyrir standist fyllilega kröfur um gæði og sé vel samkeppnishæf við aðra klúbba. Það er jafnframt markmið GKG að ná í hverri keppni eins góðum árangri og frekast er unnt, að GKG félagar séu bæði klúbbnum, Garðabæ og Kópavogi til sóma í leik og starfi og að GKG hasli sér völl og styrki sig enn frekar sem leiðandi klúbbur á sínu sviði.
5. Kynningarstarf. Það er markmið GKG að standa þannig að kynningarmálum sínum í Garðabæ og Kópavogi að þátttaka í starfi klúbbsins sé sem víðtækust og stuðningur við daglegan rekstur hans sem öflugastur. Hvers kyns útgáfustarf, mótahald, samkomur eða annað sem gert er í nafni klúbbsins til kynningar eða fjáröflunar skal vera með þeim hætti að GKG sé sómi af.
6. Fjármál. Það er markmið GKG að rekstur klúbbsins byggi á traustum fjárhagslegum grunni svo stöðugt megi bæta þá þjónustu og aðstöðu sem klúbburinn lætur í té.
7. Stjórnun. Það er markmið GKG að halda stjórnkerfi sínu virku og boðleiðum þess stuttum. Auk þess sem stjórnun klúbbsins miðast við skilvirkni í innri starfsemi er það stefna GKG að eiga gott samstarf við bæjarbúa, bæjaryfirvöld, fyrirtæki og félagasamtök í Garðabæ og Kópavogi. Klúbburinn mun einnig leitast við að vera virkur þátttakandi í störfum lands- og sérsambanda íþrótta- og ungmennafélaga um land allt.
|