|
Þjónusta er í golfskálanum frá opnun vallarins og fram yfir Bændaglímu á hverju ári,
Á golfvelli GKG er búið að breyta töluvert í skálanum og er einungis veitingasala og skrifstofur í veitingaskálanum. Móttaka fyrir kylfinga og golfbúð er í nýja móttökuhúsinu við hlið þess gamla.
Veitingaskálinn tekur um 50-60 manns í sæti. Síminn í veitingasölu er 565 7373. Hafið samband við veitingamann varðandi alla þjónustu golfskálanum. Ýmsir góðir réttir eru í boði og er þar smurða brauðið í algjörum sérflokki.
Veitingasalan er opin alla daga til klukkan 22:00 á kvöldin yfir sumartímann og opnar 1 kl.st. fyrir mót þegar þau eru á vellinum um helgar.
Í móttökuhúsinu er tekið hlýlega á móti kylfingum. Þar er einnig vísir að golfbúð þar sem hægt er að kaupa ýmsan smávarning tengdan golfinu. Hægt er að panta rástíma og fá nánari upplýsingar í síma 565 7373.
|