|
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hefur yfir að ráða tveimur glæsilegum golfvöllum. Annars vegar er 9 holu völlur, Mýrin, en hann er staðsettur í Vetrarmýrinni í Garðabæ á því svæði sem gamli 18 holu Vífilsstaðavöllurinn var. Hins vegar er stórglæsilegur 18 holu völlur, Leirdalurinn, en hann liggur frá Vetrarmýrinni í Garðabæ og upp í Leirdal í landi Kópavogs og aftur til baka. Leirdalsvöllurinn var fullmótaður árið 2007 er nýjar 9 holur voru teknar í notkun í Leirdalnum. Byggir því Leirdalsvöllurinn að helmingi á gamla Vífilsstaðavelli og að hinum helmingi af stórglæsilegum nýjum holum í Leirdal. Er óhætt að segja að Leirdalsvöllurinn sé einn fjölbreyttasti,skemmtilegasti og glæsilegasti 18 holu völlur landsins og verður enginn svikinn af því að leika golf á honun.
Hægt að sjá legu vallanna á yfirlitsmynd með því að smella hér.
Hér fyrir neðan er lýsing á hverri holu á báðum völlum, smellið bara á viðkomandi holu til að sjá mynd og lýsingu:
|