Styrktarmót fyri sveitir GKG
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson   
Föstudagur, 20. ágúst 2010 13:17

Mótið er styrktarmót fyrir allar sveitir GKG.  Karla og kvennasveitir stóðu sig með mikilli prýði um siðustu helgi, og nú eru sveitir unglinga og öldunga að keppa.

Mótið er punktamót og verða veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin.
Glæsileg verðlaun:
1. verðlaun - Tölvuprentari að verðmæti 40.000 frá OPTIMA
2. verðlaun - ECCO gjafabréf verðmæti 30.000
3. verðlaun - Bakpoki frá ZO-ON að andvirði 20.000

Höggleikur án forgjafar
1. verðlaun - GSM Sími frá LG GU 280 3G Sími
2. verðlaun -  50 ltr. eldsneyti frá ATLANTSOLÍU

Nándarverðlaun
2. hola - Lampi frá Smith og Norland
4. hola - Leikhúsmiði fyrir 2 í borgarleikhúsinu
9.hola - Þráðlaus sími frá Smith og Norland
11. hola - Trivial Pursuit
13. hola - Leikhúsmiði fyrir 2 í borgarleikhúsinu
17. hola - Kennsla frá Úlfari Jónssyni

Lengsta Drive 12. hola
golfkennsla frá Derrick Moore

Einnig verður dregið úr skorkortum
- Hringir með Simma og Birgi Leif
- Heilsubælið 1 og 2 á DVD
- Popp vél
- Veðurstöð
- Trivial Pursuit


Dregið verður úr skorkortum í mótslok.

Verð kr. 3.500 og er innifalin súpa og brauð í mótslok


Nú er um að gera að mæta og styrkja þessar öflugu og glæsilegu sveitir sem keppa fyrir hönd klúbbsins.

 
Miðvikudagsmótaröðin(5)
Skrifað af: Valgeir Tómasson   
Miðvikudagur, 18. ágúst 2010 14:54

Stöðuna í miðvikudagsmótaröðinni  eftir 5 mót má nálgast hér

 
Styrktarmót fyrir Sveitir
Skrifað af: Valgeir Tómasson   
Þriðjudagur, 17. ágúst 2010 15:42

Næstkomandi laugardag 21. Ágúst verður haldið styrktarmót fyrir sveitir GKG. GKG sendir 10 keppnissveitir til þátttöku í sveitakeppni GSÍ. Í þessum 10 sveitum eru um 65 félagar úr GKG sem að keppa fyrir hönd klúbbsins í þessari skemmtilegu keppni.

Það fylgir þó þessari þátttöku töluverður kostnaður og því biðlum við til félaga GKG og öllum sem vilja leggja hönd á plóginn að taka þátt í styrktarmóti fyrir sveitirnar.

Mótið er punktakeppni annarsvegar og höggleikur án forgjafar hinsvegar. Þá verða einnig veitt nándarverðlaun á par 3 brautum.

Mótsgjald er 3500 krónur og innifalið í því er súpa og brauð í mótslok.

Skráning fer fram inn á www.golf.is

Mynd: Kvennasveit GKG 2010

GKG_sveit_kvenna_2010_

 
Sveitakeppni GSÍ
Skrifað af: Valgeir Tómasson   
Þriðjudagur, 17. ágúst 2010 15:26

Um síðustu helgi tóku karla- og kvennasveit GKG þátt í sveitakeppni GSÍ. Árangur sveitanna í báðum flokkum var glæsilegur. Kvennasveitin náði sínum besta árangri með því að ná öðru sæti á heimavelli eftir að hafa tapað í úrslitaleik á móti GR. Stelpurnar léku glæsilegt golf og sigruðu alla 4 andstæðinga sína á leiðinni í úrslitaleikinn.

Karlasveitin lék á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili. Karlasveitin tapaði naumlega í æsispennandi undanúrslitaleik gegn GKJ en náði síðan þriðja sætinu örugglega með sigri á GK.

Frábær árangur hjá báðum sveitum!

Sveit_GKG_karla_2010

 
Sveitakeppni unglinga - sveitir GKG

 

Skrifað af: Úlfar Jónsson   
Þriðjudagur, 17. ágúst 2010 10:01

Sveitir GKG unglinga hafa verið valdar til að keppa í Sveitakeppni GSÍ dagana 20.-22. ágúst. Mótið er tvískipt og er haldið í flokkum pilta og stúlkna 18 ára og yngri hjá Golfklúbbi Suðurnesja annarsvegar, og í flokkum drengja og stúlkna 15 ára og yngri hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar hinsvegar.

Til hliðsjónar við val var m.a. miðað við árangur í GSÍ mótunum, Meistaramóti GKG, Unglingamótaröðinni, forgjöf, ástundum við æfingar og sýndan áhuga.

Eftirtaldir skipa sveitir GKG:

 

Þorlákshöfn
15 ára og yngri stúlkur
Elísabet Ágústsdóttir
Erna Rún Ólafsdóttir
Borg Dóra Benediktsdóttir
Helena Kristín Brynjólfsdóttir
Ásthildur Lilja Stefándóttir
Gunnhildur Kristjánsdóttir
Liðsstjóri: Erna Valdís/Hrafnhildur
15 ára og yngri drengir
A sveit
Egill Ragnar Gunnarsson
Ragnar Már Garðarsson
Aron Snær Júlíusson
Kristófer Orri Þórðarson
Óðinn Þór Ríkharðsson
Þórður Örn Reynisson
Liðsstjóri: Sigmundur Einar Másson
B-sveit
Sverrir Ólafur Torfason
Máni Geir Einarsson
Einar Valberg Eiríksson
Gunnar Valdimar Johnsen
Elías Björgvin Sigurðsson
Sindri Sigurður Jónsson
Liðsstjóri: Guðbjartur Gunnarsson
Leiran GS
16-18 ára stúlkur
Særós Eva Óskarsdóttir
Andrea Jónsdóttir
Jóna Þórarinsdóttir
Ninna Þórarinsdóttir
Liðsstjóri: Úlfar Jónsson
16-18 ára drengir
A sveit
Ari Magnússon
Davíð Ómar Sigurbergsson
Emil Þór Ragnarsson
Jón Sævar Brynjólfsson
Rúnar Örn Grétarsson
Liðsstjóri: Birgir Leifur Hafþórsson
B-sveit
Daníel Hilmarsson
Daníel Jónsson
Gunnar Gunnarsson
Pétur Andri Ólafsson
Yngvi Sigurjónsson

Liðsstjóri: Úlfar Jónsson

 

Áfram GKG!

 
Svalamótaröðin - Uppfært
Skrifað af: Valgeir Tómasson   
Mánudagur, 16. ágúst 2010 22:39

Úrslitin eru klár úr fjórða og síðasta móti svalamótaraðarinnar.

Vegna mistaka í skráningu þurfti að uppfæra listann!!

Hægt er að nálgast þau hér

Verðlaunahafar geta nálgast verðlaun sín í golfverslun GKG

 
Frábær árangur GKG kvenna.
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson   
Sunnudagur, 15. ágúst 2010 10:27

Kvennasveit GKG hefur náð frábærum árangri í sveitakeppni kvenna sem fram fer á Leirdalsvelli og endar í dag.

Stúlkurnar okkar gerðu sér lítið fyrir og unnu GKJ í leik um það hverjar myndu spila um 1- 2 sætið.  GKG vann 3/2 og er því nú að ná besta árangri frá upphafi.  GKG og GR leika til úrslita og hefst leikur þeirra um kl. 10:30

Úrslit leikja okkar kvenna í mótinu eru:

GO - GKG  :   GKG vann 4/1

GK - GKG  :   GKG vann 4/1

GKG - GMS:  GKG vann 5/0

GKG - GKJ :  GKG vann 3/2

 

Við óskum stelpunum okkar alls hins besta og hvetjum félaga til aðkoma  og fylgjast með úrslitaleiknum sem er í gangi núna

 
Lokun vegna sveitakeppni GSÍ
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson   
Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 12:15

Ágætu félagar

Þessa helgina fer fram sveitakeppni GSÍ í 1. og 2. deild kvenna og verður leikið á báðum völlum GKG. 

Við munum reyn að opna vellina fyrir almennan leik eins fljótt og auðið er og biðjum félaga um að fylgjast með á www.golf.is.

 

Við bendu félagsmönnum í GKG á að þeir geta spilað aðra velli geng 50% afslætti þessa helgi

 
Sveitir GKG
Skrifað af: Valgeir Tómasson   
Þriðjudagur, 10. ágúst 2010 13:18

Keppnissveitir GKG í sveitakeppni GSÍ hafa verið skipaðar og taka eftirfarandi kylfingar þátt:

Karlar:
Birgir Leifur Hafþórsson
Alfreð Kristinsson
Bjarki Freyr Júlíusson
Björgvin Smári Kristjánsson
Guðjón Henning Hilmarsson
Kjartan Dór Kjartansson
Sigmundur E. Másson
Sigurður R. Ólafsson
Liðsstjóri: Gunnar Páll Þórisson

Konur:
Erna V. Ívarsdóttir
Hansína Þorkelsdóttir
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Ingunn Einarsdóttir
Ingunn Gunnarsdóttir
Jónína Pálsdóttir
María Guðnadóttir
Guðfinna Halldórsdóttir
Liðsstjóri: Haraldur Þórðarson

Báðar sveitir leika í efstu deild og spila karlarnir hjá Golfklúbbnum Keili en konurnar leika á heimavelli. Báðar sveitir hefja leik föstudaginn 13. ágúst.

 
Sveitakeppni kvenna dagana 13.-15. ágúst
Skrifað af: Valgeir Tómasson   
Mánudagur, 09. ágúst 2010 17:05

Ágætu félagar

Næstu helgi fer fram sveitakeppni kvenna í fyrstu og annari deild og verður mótið haldið á bæði á Leirdalnum og Mýrinni.

Þannig verða báðir vellirnir lokaðir til kl 17:30 bæði föstudag og laugardag. Á sunnudaginn opna síðan báðir vellirnir eftir hádegi eða um 14:00

Kylfingar úr GKG geta spilað aðra velli með greiðslu 50% af vallargjaldi

Þeir sem að sjá sér fært að aðstoða við framkvæmd mótsins eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu klúbbsins.

Að lokum eru allir hvattir til þess að mæta á svæðið og horfa á fremstu kvennkylfinga landsins spila í einu skemmtilegasta móti ársins!

 
Birgir Leifur Íslandsmeistari í holukeppni!
Skrifað af: Valgeir Tómasson   
Sunnudagur, 08. ágúst 2010 16:14

Birgir-Leifur---Akranes-3-10
Mynd: www.kylfingur.is
Birgir Leifur Hafþórsson varð í dag íslandsmeistari í holukeppni. Birgir hefur staðið sig frábærlega undanfarnar vikur og unnið hvert mótið á fætur öðru. Í úrslitaleiknum bar Birgir sigur af Þórði Rafn Gissurarsyni úr GR. Leikurinn var æsispennandi og hafði Birgir eina holu í forskot á 18. teig. Þórður náði að jafna og því þurfti að útkljá leikinn í bráðabana. Á fyrstu holu í bráðabana fékk Birgir fugl og innsiglaði þar með sinn annan Íslandsmeistaratitil á einum mánuði.

Guðjón Henning Hilmarsson náði einnig frábærum árangri í mótinu. Eftir að hafa beðið lægri hlut fyrir Birgi í undanúrslitum, sýndi Guðjón góðan karakter með því að sigra Arnar Snæ Hákonarson í viðureigninni um þriðja sætið. Eftir að hafa verið undir stóran hluta af leiknum náði Guðjón að jafna á seinni hlutanum og hafði loks sigur á 18. holu - 1/0. Frábær árangur hjá Guðjóni sem hefur staðið sig mjög vel undanfarnar vikur.

Þrír kylfingar úr GKG komust í 8 manna úrslit, en auk þeirra Birgis og Guðjóns komst Björgvin Smári Kristjánsson einnig upp úr sínum riðli. En þar sló hann út meðal annars Kristján Þór Einarsson sem hafði titil að verja í mótinu.

Þessi úrslit gefa kylfingum vonandi sjálfstraust fyrir næstu helgi, en á föstudaginn hefst Íslandsmótið í sveitakeppni en leikið er á Hvaleyrarvelli, þar á GKG einmitt titil að verja.

Kvennasveitin spilar einnig á Íslandsmótinu í sveitakeppni næstu helgi en þær leika á heimavelli.

Það er því golfveisla í gangi næstu helgi hjá afrekskylfingum GKG og vonumst við eftir áframhaldi á góðu gengi kylfinganna okkar.

Að lokum vill GKG óska Birgi Leif og Guðjóni Henning innilega til hamingju með glæsilegan árangur í mótinu. Eru þeir sem og aðrir afrekskylfingar GKG í karla og kvennaflokki klúbbnum til sóma innanvallar sem og utan.

Áfram GKG!

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Styrktaraðilar






LYSING

Póstlisti GKG

Joomla Templates by Joomlashack