Meistaramót GKG 2010 - Skráningarfrestur framlengdur
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson   
Fimmtudagur, 01. júlí 2010 14:16

Búið er að framlengja skránignarfrest í Meistaramót GKG 2010, til föstudagsins 2. júlí kl. 12:00.

Metfjöldi er þegar skráður í mótið og verður ekki hægt að skrá sig í mótið eftir kl 12 á morgun, 2.júlí.

Kveðja, Mótsstjórn

 
Niðjamót GKG 2010
Skrifað af: Jón Hörðdal   
Sunnudagur, 27. júní 2010 10:46

Hið árlega niðjamót GKG fer fram laugardaginn 3.júlí. Þetta er stærsti viðburðurinn í fjölbreyttu fjáröflunarstarfi afreksunglinga klúbbsins og hvetjum við því mömmur og pabba, ömmur og afa til þess að mæta með niðjum sínum og eiga góða stund saman við skemmtilegan leik og spennandi keppni.  Að þessu sinni er motið opið öllum klúbbum og hvetjum við því alla til þess að fá með sér vini og félaga úr öðrum klúbbum (gildir þó áfram reglan um að annar keppendana í hverju liði sé niðji hins, þ.e. barn, barnabarn eða tengdabarn).

Smellið hér til þess að skrá í mótið á golf.is og á "Nánar" hér að neðan til þess að sjá auglýsingu um mótið með nánari upplýsingum.

Nánar...
 
Úrslit úr mótaröðum vikunnar
Skrifað af: Valgeir Tómasson   
Föstudagur, 25. júní 2010 21:52

Bæði Miðvikudags- og Svalamótaröðin fór fram í vikunni.

Miðvikudagsmótaröðin fór fram miðvikudaginn 23. júní. Hægt er að nálgast stöðuna eftir tvö mót hér

4 bestu mótin af 6 telja og því ennþá hægt að vera með. Glæsileg verðlaun eru veitt fyrir besta árangurinn yfir sumarið en má þar nefna gjafabréf í Golfbúðina í Hafnarfirði, Gjafabréf hjá Ecco og fleiri flotta vinninga.

 

Svalamótaröðin fór fram fimmtudaginn 24. júní á Mýrinni. Svalamótaröðin er mótaröð fyrir 12 ára og yngri börn sem eru að stíga sín fyrstu skref á golfvellinum. Þáttakan var glæsilega og spiluðu rúmlega 50 krakkar á mýrinni. 10-12 ára hópurinn spilar á rauðum teigum á meðan 9 ára og yngri spila á sérútbúnum styttri teigum sem hentar betur þeirra getu. Spilað er eftir sérstöku forgjafarkerfi sem er aðlagað að hæfni barnanna og fá þau 54 í upphafsforgjöf í stað 36 eins og hinn almenni kylfingur þekkir. Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki og geta börnin nálgast verðlaunin sín eftir helgi í golfversluninni.

Úrslitin úr fyrsta móti Svalamótaraðarinnar má sjá hér

Að lokum vill GKG minna alla á að skráningin í meistaramótið er í fullum gangi og hvetur alla að skrá sig sem fyrst!

Áfram GKG

 

 
Tveir kylfingar úr GKG í íslenska landsliðinu
Skrifað af: Úlfar Jónsson   
Föstudagur, 25. júní 2010 09:48

Íslenska landsliðið sem keppir í Evrópumóti landsliða í Svíþjóð var tilkynnt í morgun. Tveir kylfingar úr GKG eru í liðinu, þeir Sigmundur Einar Másson og Alfreð Kristinsson. Við óskum þeim til hamingju með valið. Derrick Moore, þjálfari hjá GKG er þjálfari landsliðsins. Liðið er skipað eftirfarandi kylfingum:

Alfreð Brynjar Kristinsson GKG
Axel Bóasson GK
Hlynur Geir Hjartarson GK
Kristján Þór Einarsson GKj
Ólafur Björn Loftsson NK
Sigmundur Einar Másson GKG
Liðsstjóri Ragnar Ólafssonl og Derrick Moore

EM karla fer fram hjá Österåkers Golf Club, Åkersberga í Svíþjóð. Mótið fer fram 6.-10. júlí og missa þeir þá af Meistaramóti GKG.

Kvennalandslið Íslands sem keppir á EM á Spáni er skipað eftirfarandi kylfingum.

Eygló Myrra Óskarsdóttir GO
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR
Ragna Björk Ólafsdóttir GK
Signý Arnórsdóttir GK
Tinna Jóhannsdóttir GK
Valdís Þóra Jónsdóttir GL
Liðstjórar: Steinunn Eggertsdóttir og Karl Ómar Karlsson

EM kvenna fer fram á La Manga á Spáni 6.-10. júlí.

 
Svalamótaröðin - vins. sýnið biðlund
Skrifað af: Úlfar Jónsson   
Fimmtudagur, 24. júní 2010 12:30
Í dag hefst fyrsta mótið af fjórum í Svalamótaröðinni. Metþátttaka er í mótið þannig að gróskan og áhuginn er mikill hjá framtíðarkylfingum GKG. Ræst er út frá 15:30 - 18:00 og eru kylfingar sem fara út á eftir vinsamlegast beðnir um að sýna keppendum biðlund og þolinmæði.
 
Átta ára golfsnillingur
Skrifað af: Úlfar Jónsson   
Fimmtudagur, 24. júní 2010 09:48

Sigurður Arnar Garðarsson, er aðeins 8 ára og er þegar kominn með 20,7 í forgjöf! Blaðamaður Morgunblaðsins hitti Sigurð um daginn og úr varð stórskemmtilegt sjónvarpsviðtal sem má sjá hér.

 
Opið sólstöðumót kvenna á föstudag.
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson   
Miðvikudagur, 23. júní 2010 15:36

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í hið árlega sólstöðumót kvenna sem fram fer á Leirdalsvelli á föstudagskvöld.  Mótið er punktamót og verður ræst út af öllum teigum kl. 18:45.  Mæting er kl: 18:00

Leikið verður í tveimur flokkum: konur undir 24 og konur 24,1 - 40.  Hámarks vallarforgjöf er 40.

Verð er kr. 4.500 og er innifalið súpa, salat og brauð að leik loknum.

Glæsileg verðlaun verða fyrir fyrstu 4 sætin í hvorum flokki. Þar á meðal gisting fyrir 2 á EDDU Hóteli með morgunverði. Hádegisverður fyrir 2 á Hótel Holt. Kvöldverðarhlaðborð fyrir 2 í Lóninu Hótel Loftleiðum. Golfkennsla hjá Úlfari Jónssyni, golfpokar frá Holi in One.
* Leikmenn verða að hafa gilda forgjöf til að geta unnið til verðlauna.

Nándarverðlaun á 2, 11, 13, og 17. holu

Dregið verður úr skorkortum í mótslok og verða keppendur að vera á staðnum til að geta hlotið þau.

Verðlaunafhending verður í golfskála í mótslok.

Kveðja, kvennanefnd

 
Jónsmessumót 2010
Skrifað af: Ólafur E. Ólafsson   
Þriðjudagur, 22. júní 2010 15:40
jonsmessa_2010
 
Miðvikudagsmótaröðin(2)
Skrifað af: Valgeir Tómasson   
Mánudagur, 21. júní 2010 16:47

Annað mót ársins á Miðvikudagsmótaröðinni fer fram næstkomandi miðvikudag 23. júní

Fyrirkomulagið er það sama og áður. Kylfingar skrá sig venjulega á rástíma, koma inn í golfverslun og greiða þar mótsgjald 1.500 krónur og fá útprentað skorkort til að skrá inn skorið sem á að skila inn eftir hringinn. Kylfingar hafa möguleika á því að skila inn skorkortinu til kl. 22 á fimmtudaginn eftir mótið.  Leikin er punktakeppni í karla og kvennaflokki og gilda 4 bestu hringirnir af 6 í sumar. Eins og áður verða glæsileg verðlaun fyrir heildapunktakeppnina eins sem að veitt verða verðlaun fyrir flesta punkta í einstökum mótum.

Úrslit eftir 1. hring má nálgast hér

 
Frábær sigur og 66 högg hjá Ragnari Má
Skrifað af: Úlfar Jónsson   
Mánudagur, 21. júní 2010 11:24

Um helgina lauk 3. stigamóti ársins í Arion banka mótaröð GSÍ. Leikið var á Strandarvelli við Hellu. GKG kylfingar stóðu sig mjög vel og sigraði Ragnar Már Garðarssson í flokki 15-16 ára, lék á 66 höggum á seinni keppnisdegi og sigraði með tveggja högga mun!

Nánari upplýsingar um árangur allra keppenda má finna hér.

Á myndinni má sjá verðlaunahafa í flokki 15-16 ára, frá vinstri Hallgrím Júlíusson, Ragnar Má og Bjarka Pétursson.

Einnig var haldið mót nr. 3 í Áskorendamótaröðinni og komu GKG kylfingar vel út úr þeirri keppni en Óðinn Þór Ríkharðsson og Viktor Franz Jónsson, sigruðu í sínum flokkum, en úrslit úr mótinu má sjá hér.

 
Kylfingar athugið
Skrifað af: Guðmundur Árni Gunnarsson   
Mánudagur, 21. júní 2010 09:18

Í dag 21. júní til og með miðvikudagsins 23. júní fer fram fíngerð tappagötun á flötum 1, 2, 16, 17 og 18 á Leirdalsvelli.

Á meðan á þessum aðgerðum stendur verða bráðabirgða holur framan við þá flöt sem unnið er á hverju sinni. Þetta er nauðsynleg framkvæmd til að bæta flatir vallarinns og ættu flatirnar að jafna sig á rúmlega viku.  Við vonum að félagar sýni þessari framkvæmd skilning.

Kveðja, Vallarstjóri

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Styrktaraðilar






LYSING

Póstlisti GKG

Joomla Templates by Joomlashack