Vélakostur
Vélakostur GKG er með þeim fullkomnari sem finnst á golfvöllum hér á landi. Allar slátturvélar eru af gerðinni Ransomes Jacobsen og hafa þær reynst okkur gríðarlega vel í gegn um tíðina. Önnur tæki og vélar koma frá Turfco, John Deere, Kubota, Massey Ferguson, EZ-GO og fleiri framleiðendum.
Vélakostur okkar er auk þess tiltölulega nýr og eru skipulagðar áætlanir varðandi endurnýjanir á vélum með reglulegu millibili. Elstu vélar á vellinum eru með því móti aldrei eldri en 4-6 ára gamlar.

Vélakostur GKG sumarið 2009 samanstendur m.a. af:

Flatarvélum með sæti og 3 völsum

Flatarvélum til handsláttar

"Rough"vélum með 5 slátturþyrlum sem slá karga

Brautarvélum með 5 slátturhausum

Sandara "Topp dresser"

Vinnubílum 6 hjóla með palli

Dráttarvélum


Auk þessarra tækja og véla sem hér eru sýnd að ofan eru óteljandi sérhæfð verkfæri og tæki sem þurfa að vera til staðar á golfvelli GKG.
 
Joomla Templates by Joomlashack