Vinaklúbbar

Eins og fyrri sumur hefur GKG gert samstarfssamning við golfklúbba í námunda við höfuðborgarsvæðið og er því haldið áfram í ár. Breytingar verða í hópnum þetta sumarið en Þorlákshöfn kemur inn sem nýr völlur. Einnig verður sá háttur hafður á að félagsmenn greiða málamyndagjald fyrir hvern leikinn hring en GKG greiðir mismuninn.

Árið 2009 geta meðlimir GKG því leikið gegn greiðslu málamyndagjalds hjá eftirfarandi klúbbum:

Þeir vellir sem verða í boði þetta sumarið eru :

  • Golfklúbburinn Leynir Akranesi
  • Golfklúbbur Borgarness
  • Golfklúbbur Hellu
  • Golfklúbburinn Þorlákshöfn

Verið er að skoða með fleiri velli og verða upplýsingar um þá settar inn ef samningar nást.

Félagsmenn GKG þurfa að greiða 1.000 króna vallargjald þegar spilað er hjá GHR, GL, GB og GÞ .

Framvísa þarf félagsskírteini þegar vallargjald er greitt.

Ekki er um að ræða gagnkvæman spilrétt á Vífilsstaðavelli fyrir félaga í ofangreindum golfklúbbum.

 
Joomla Templates by Joomlashack